Innlent

Fundað um jarðskjálfta á Norðurlandi

BBI skrifar
Íbúafundir vegna skjálftavirkni á Norðurlandi verða haldnir á morgun. Fundirnir eru hugsaðir til upplýsingar fyrir íbúa Norðurlands.

„Þar verður fjallað um viðbrögð við jarðskjálftum og hvernig rétt er að undirbúa sig fyrir jarðskjálfta. Einnig verða sérfræðingar á fundinum sem munu útskýra hvað olli skjálftunum og svara spurningum almennings," segir Svavar Pálsson, sýslumaður á Húsavík.

Svavar segir að fundurinn sé fyrst og fremst haldinn til að upplýsa íbúa Norðurlands frekar um jarðskjálfta, en íbúarnir fengu dreifibréf í síðustu viku eftir að öflugir jarðskjálftar urðu utan af Norðurlandi um helgina.

Fundirnir verða á morgun, annar á Húsavík klukkan 17:30 á Fosshóteli, Ketilsbraut 22, hinn á Kópaskeri klukkan 21:00 á Skjálftasetrinu að Akurgerði 6.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×