Innlent

Afbrotum fækkar eftir sérstakt átak lögreglu

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Innbrotum og öðrum auðgunarbrotum hefur fækkað umtalsvert síðustu tvö ár. Til dæmis voru innbrot í september á höfuðborgarsvæðinu í sögulegu lágmarki. Er það rakið til sérstaks átaks sem lögreglan réðst í.

Í afbrotatíðindum Ríkislögreglustjóra sem komu út í síðustu viku má sjá markverða fækkun innbrota á þessu ári þegar tölurnar eru bornar saman við árin tvö á undan.

Á fyrstu níu mánuðum ársins voru eittþúsund áttatíu og fjögur innbrot skráð. Í fyrra á sama tímabili voru innbrotin þrettánhundruð áttatíu og þrjú og árið tvöþúsund og tíu voru þau tvöfallt fleiri en í ár, eða tvöþúsund eitthundruð nítíu og fimm.

Að sögn lögreglu má rekja árangurinn til verkefnis sem hófst í september 2009 og nefnist virkir brotamenn. Þá var farið að kortleggja vandann betur.

„Og að beita líka úrræðum gegn síbrotamönnum, að leiða þá fyrir dómara og fá þá úrskuðaða í síbrotagæslu þannig að það sé hægt að ljúka málum þeirra. Með þessu höfum við komið í veg fyrir að brotamönnum geti fjölda mála áður en þeir taka afleiðingum með dómi," segir Jón H. B. Snorrason, lögreglustjóri.

Að auki hefur gefist vel að skipta löggæslunni upp á fimm lögreglustöðvar á höfuðborgarsvæðinu og þannig fái lögreglan betri yfirsýn yfir viðkomandi hverfi. Þriðji þátturinn er síðan góð samskipti á milli lögreglu og borgaranna og verkefni á borð við nágrannavörslu.

Og sú staðreynd að sjaldan eða aldrei hafi færri innbrot verið framin eins og nú í september sýnir lögreglunni að menn séu á réttri leið:

„Fyrirheit um einhvern árangur sem við eigum að leggja metnað í að viðhalda," segir Jón.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×