Innlent

Stúdentar vilja undanþágu frá byggingarreglugerð

GRV skrifar
Stúdentar við Háskóla Íslands krefjast þess að veitt verði undanþága frá nýrri byggingarreglugerð svo koma megi í veg fyrir að leigan á nýjum stúdentagörðum verði hærrri en reiknað hafði verið með.

Ljóst er að nýja reglugerðin muni hækka byggingarkostnað umtalsvert, eða allt að tuttugu prósentum og hefur Félagsstofnun stúdenta gert Stúdentaráði grein fyrir því að þetta muni þýða hærri leigu í stúdentagörðunum sem nú eru í byggingu við Sæmundargötu á Háskólasvæðinu. Sara Sigurðardóttir formaður Stúdentaráðs segir ljóst að til að aðlagast breyttri reglugerð þurfi að gera töluverðar breytingar á skipulagi íbúðanna.

„Sem mun gera það að verkum að kostnaðurinn við byggingarnar mun hækka umtalsvert," segir Sara Sigurðardóttir, formaður stúdentaráðs Háskóla Íslands.

Stúdentaráð hefur því krafist þess að fá undanþágu frá breyttri reglugerð.

„Það er orðið mjög erfitt að vera stúdent í dag. Ef leiguverð mun hækka á sama tíma og námslán eru ekki nógu há fyrir stúdenta og þeir neyðast til að vinna með skóla. Það er náttúrlega eilífur vítahringur. Svo er samgöngukostnaður að hækka með dýrari strætókortum. Skrásetningargjöld eru að hækka. Bókakostnaður er að hækka. Þetta er allt að falla niður á stúdenta," segir Sara.

„Það er verið að gera ungu fólki erfiðara að stunda sitt nám. Það er mjög sorglegt að þróunin sé í þessa átt. Við viljum að fleiri fari í háskóla. Við viljum meira af menntafólki á Íslandi. Við viljum að ungu fólki sé gert kleift að stunda sitt nám og sitt líf á sem auðveldastan hátt. En þróunin virðist alltaf miða í öfuga átt, sem er náttúrlega ekki jákvætt," segir Sara.


Tengdar fréttir

Leiguverð stúdentaíbúða hærra en reiknað var með

Talsmenn Félaqgsstofnunar stúdenta hafa tjáð Stúdentaráði Háksóla Íslands að leiguverð í stúdentagörðunum, sem verið er að byggja, verði umtalsvert hærra en reiknað var með í upphafi, vegna kostnaðarauka sem hlýst af nýrri byggingarreglugerð. Eins og fram er komið telja samtök iðnaðarins að reglugerðin hækki byggingarkostnað um tíu til 20 prósent og hafa mótmælt ýmsum atriðum í henni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×