Ætlaði á Vog en endaði í gæsluvarðhaldi - og fær bætur fyrir 10. október 2012 11:03 Þessi mynd var tekin þegar einn af mönnunum fjórum voru leiddir fyrir dómara vegna gæsluvarðhaldsúrskurðar.
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í morgun íslenska ríkið til þess að greiða karlmanni rúmlega tvær milljónir króna vegna gæsluvarðhalds sem hann þurfti að sæta árið 2011 í tengslum við skotárás sem átti sér stað á aðfangadegi árið 2010. Landsmönnum var verulega brugðið við fregnirnar af árásinni en fjórir menn voru handteknir fyrir að skjóta með haglabyssu á heimili ungrar fjölskyldu, en meðal annars voru börn í íbúðinni. Fjölskyldan komst undan bakdyramegin og voru mennirnir fjórir handteknir nokkru síðar. Þrír voru að lokum dæmdir fyrir að hafa skotið á hurðina en sá sem vann skaðabótamálið nú, var aftur á móti sýknaður, þar sem hann átti enga aðild að árásinni. Raunar virðist maðurinn hafa flækst í atburðarrásina með ótrúlegum hætti. Þannig ætlaði hann á Vog í vímuefnameðferð sama morgunn, á aðfangadegi, en atvik æxluðust þannig að hann fór ekki. Hann hringdi þá í félaga sinn, sem bauð honum í heimsókn þar sem hann var fyrir ásamt bróður sínum og þriðja manni. Þriðji maðurinn kom og sótti þann óheppna, en kom við á heimili fjölskyldunnar þar sem skotárásin átti sér síðar stað. Þeim samskiptum lyktaði með því að þriðji maðurinn var sleginn af húsráðanda, sem varð til þess að þeir fóru til bræðranna, sóttu skotvopn, og héldu aftur að heimilinu, nú með bræðrunum. Sá sem vildi komast í meðferðina segist hafa vitað af skotvopninu í bílnum, og að hræða hafi átt húsráðanda með því, en hann neitar að hafa vitað til þess að vopnið væri hlaðið. Þegar að heimilinu var komið skaut einn af þremenningunum á húsið. Þá hljóp maðurinn samstundis í burtu. Félagi hans elti hann uppi og náði að stöðva hann. Hinir forðuðu sér af vettvangi. Lögreglan kom skömmu síðar og handtók mennina tvo þar sem þeir voru nærri húsinu. síðar voru bræðurnir handteknir. Allir voru þeir úrskurðaði í gæsluvarðhald fram yfir áramótin. Dómari Héraðsdóms Reykjavíkur segir að sú tilhögun hafi verið lögmæt og skiljanleg. Maðurinn fékk því ekki bætur greiddar fyrir gæsluvarðhaldið sem hann sætti fyrstu vikuna, enda gaf hann vitlausan framburð í yfirheyrslum. Skömmu síðar breytti maðurinn framburði sínum og sagði lögreglu sannleikann um aðild sína að árásinni, sem var afar takmörkuð, raunar svo að hann var að lokum sýknaður fyrir hlut sinn í málinu. Í niðurstöðu héraðsdóms segir að þáttur mannsins hafi að mestu verið upplýstur 4. janúar 2011, þegar ákveðið var að framlengja gæsluvarðhald hans. Þurfti maðurinn engu að síður að dúsa í gæsluvarðhaldi í um þrjá mánuði þar sem það var ítrekað framlengt. Fékk maðurinn því 1,4 milljón í miskabætur fyrir þann tíma sem hann sætti slíkri þvingun. Þá er ríkinu einnig gert að bæta honum fjártjón sem hann varð fyrir vegna vinnumissis, en maðurinn var í fullri vinnu þegar hann endaði í gæsluvarðhaldi. Sú upphæð nemur 730 þúsund krónum. Alls fær maðurinn því 2,1 milljón í bætur frá ríkinu. Hann fékk einnig gjafsókn, þannig ríkið stendur straum af þeim kostnaði einnig.
Mest lesið Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Var látin í sólarhring áður en hún fannst Erlent Fleiri fréttir Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð Sjá meira