Róbert Marshall styður ríkisstjórnina fram að kosningum 11. október 2012 08:27
Róbert Marshall segir að hann muni styðja ríkisstjórnin fram að kosningum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá þingmanninum þar sem hann boðar úrsögn sína úr Samfylkingunni og inngöngu í flokkinn Björt framtíð. Yfirlýsing Róberts hljóðar svo: „Ég hef ákveðið að segja skilið við Samfylkinguna og ganga til liðs við framboð Bjartrar framtíðar í komandi kosningum. Sú ákvörðun byggir á þeirri sannfæringu minni að rjúfa þurfi þá átakahefð sem fest hefur rætur í íslenskum stjórnmálum. Átök innan og á milli núverandi stjórnmálaflokka á yfirstandandi kjörtímabili og vantraust á þeim afhjúpar veikleika íslenska flokkakerfisins og hversu illa það þjónar samfélagi okkar. Það er kominn tími til að breyta því og ég vil leggja mitt af mörkum til að svo megi verða. Ég tel að fjöldi fólks bíði eftir stjórnmálaafli sem skilgreini sig hvorki til hægri né vinstri en sé öfgalaus vettvangur sátta og samtals í stað rifrildis og gífuryrða. Björt framtíð er slíkt afl. Hún er umhverfisvæn og leggur áherslu á að ljúka samningum við Evrópusambandið svo almenningur geti tekið afstöðu til inngöngu á upplýstum grunni. Björt framtíð er brúarsmiður og sáttasemjari sem mun beita sér fyrir samstarfi stjórnar og stjórnarandstöðu fremur en átökum og hefðbundnu karpi. Við þurfum breytt vinnubrögð til að eiga Bjarta framtíð. Sú málefnavinna sem m.a. birtist á heimasíðu Bjartrar framtíðar og sú nauðsynlega hugarfarsbreyting sem hún boðar er mér mjög að skapi og ég vil taka þátt í þeirri vinnu. Ég var kjörinn á þing fyrir Samfylkinguna á þessu kjörtímabili og styð í samræmi við það ríkisstjórnina fram að kosningum. Ég á von á því að samstarf mitt við hana haldist óbreytt frá því sem verið hefur. Brotthvarf mitt byggir fyrst og fremst á þeirri löngun minni til að nálgast stjórnmál næsta kjörtímabils með öðrum hætti. Þannig tel ég að ég nýti stutta þingreynslu mína sem best fyrir land og þjóð. Ég óska félögum mínum og vinum í Samfylkingunni gæfu og áframhaldandi velgengni í störfum sínum."
Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Ók viljandi á ástralska þingkonu Erlent Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Fleiri fréttir 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Sjá meira