Innlent

Tryggvi vill leiða listann í Norðausturkjördæmi

Tryggvi Þór Herbertsson.
Tryggvi Þór Herbertsson. Mynd/Stefán Karlsson
Tryggvi Þór Herbertsson ætlar að sækjast eftir að leiða lista Sjálfstæðismanna í Norð-Austurkjördæmi í komandi kosningum. Þetta hyggst hann tilkynna á fundi kjördæmisráðs flokksins sem fram fer í Mývatnssveit um helgina.

Tryggvi vildi ekki staðfesta þetta í dag en samkvæmt heimildum fréttastofu tilkynnti Tryggvi, Kristjáni Þór Júlíusson núverandi oddvita flokksins í kjördæminu um ákvörðun sína í dag. Kristján hyggst halda áfram á þingi og því stefnir í oddvitaslag hjá Sjálfstæðismönnum í NorðAusturkjördæmi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×