Myndskreytt líffræðikennslubók fyrir blinda Hugrún Halldórsdóttir skrifar 12. október 2012 23:34 Mynd af bókinni.
Nýútskrifaður grafískur hönnuður hefur útbúið myndskreytta kennslubók í líffræði fyrir blind og sjónskert börn, en slíkt kennsluefni þekkist varla hér á landi. Verkið hefur vakið talsverða athygli erlendis og hefur höfundur áhuga á að ráðast í gerð fleiri sambærilegra bóka. Bókin er útskriftarverkefni Höllu Sigríðar í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands en hugmyndina fékk hún eftir að hafa komist að því að íslenskt námsefni blindra og sjónskertra byggist eingöngu á blindraletri. „Þetta sat svo í mér að þegar kom að lokaverkefninu ákvað ég að reyna að fylla aðeins upp í þessa vöntun," segir Halla. Halla ákvað að semja líffræðibók fyrri börn á aldrinum 6 til 8 og tók efni upp úr bókinni Komdu og skoðaðu líkamann sem er nú þegar kennd í skólum landsins. „Það er semsagt fjallað um lög líkamans. Ég ákvað að skipta upp í húðina, vöðvana, beinin og innyflin," segir Halla. Halla leitar nú eftir styrktaraðila til að geta gefið bókina út. „Þá verður þetta prentað úr misþéttum gúmmíefnum þannig að barnið á að geta fundið muninn á hörðu beinunum og mjúku vöðvunum og ennþá mýkri innyflum," segir Halla. Þrátt fyrir að einungis mánuður sé liðinn frá útskrift Höllu hefur verkefnið þegar vakið athygli erlendis og verið kynnt á ýmsum ráðstefnum. Fjallað verður um bókina í nokkrum erlendum tímaritum á næstunni og verður hún til sýnis á Þjóminjasafninu eftir helgi og öðrum sýningum erlendis síðar í mánuðinum, þar á meðal í New York. „Þetta er náttúrulega bara dropi í hafið af því sem að vantar, það væri ótrúlega gaman að geta komið með lesefni kort og í rauninni allt það sem þau vantar," segir Halla.
Mest lesið Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Innlent Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Innlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent Ákærður fyrir að veiða minka Innlent Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Innlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Fleiri fréttir Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Sjá meira