Innlent

Leigubílstjórar í hættu

Ráðist var á leigubílstjóra í Aðalstræti í miðborg Reykjavíkur í nótt. Árásin átti sér stað um klukkan hálf sjö í morgun, en farþegi tók leigubílstjórann hálstaki en hann hafði áður neitað að borga bílstjóranum fyrir farið.

Þegar lögreglan á höfuðborgarsvæðinu kom á vettvang var maðurinn horfinn á brott.

Annar leigubílstjóri lenti einnig í óheiðarlegum farþegum þegar hann ók þremur piltum og stúlku sem neituðu að borga fyrir farið.

Einn piltanna otaði hnífum að leigubílstjóranum á meðan hinir farþegarnir flýðu bílinn í miklu flýti. Engin meiddist. Lögreglan hafði uppi á ungmennunum en piltarnir gista nú fangageymslur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×