Innlent

Vélarvana skammt frá Gróttu

Grótta.
Grótta. Mynd/ Gunnar V. Andrésson
Ársæll, björgunarsveit Slysavarnafélagsins Landsbjargar, var kölluð út núna á tíunda tímanum í morgun til aðstoðar vélarvana bát. Sá var staddur rétt norðaustan við Gróttu og var rétt um einn kílómetra frá landi.

Ekki var nein bráð hætta á ferð en björgunarbáturinn Þórður Kristjánsson var sendur á staðinn og dró hann bátinn í næstu höfn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×