Innlent

Fjölskylda slapp ómeidd úr brennandi einbýlishúsi

Fjögurra manna fjölskylda slapp heil á húfi út úr einbýlishúsi úr timbri í Keflavík í nótt eftir að eldur kom þar upp, og lögreglumenn, sem voru fyrstir á vettvang, björguðu heimilishudninum út úr reykjarkófinu innandyra.

Eldurinn kviknaði í kompu, eða búri inn af eldhúsinu og vaknaði heimilisfólk upp við eitthvað þrusk eða snark og þegar gáð var í kompuna var þar allt alelda.

Heimilisfólkið greip til slökkvitækis og náði að slökkva eldinn að mestu, en þá hafði mikill reykur borist inn í húsið. Slökkviliðið slökkti svo í glæðum og reykræsti húsið.

Eldsupptök eru talin hafa orðið í raftæki í kompunni, en málið verður rannsakað nánar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×