Innlent

Náðu bestu myndunum af samgöngum

BBI skrifar
Sigurmyndin "Gleði hjólreiðum“.
Sigurmyndin "Gleði hjólreiðum“.
Tilkynnt hefur verið um sigurvegarana í ljósmyndasamkeppni Reykjavíkurborgar í tilefni samgönguviku. Fjórar bestu myndirnar má skoða hér til hliðar.

Veitt voru verðlaun fyrir þær myndir þrjár sem bestar þóttu og auk þess voru sérstök verðlaun fyrir þann sem fékk flest „like" á sína mynd, en keppnin fór m.a. fram á samfélagsmiðlum.

Fyrstu verðlaun voru reiðhjól úr Erninum en hinir verðlaunahafarnir fengu strætókort og sundkort.

Alls bárust um 35 myndir í keppnina sem stóð yfir þegar samgönguvika Reykjavíkurborgar var haldin. Samgönguvikan hófst 16. september og stóð til 22. september. Mögulegt var að senda inn myndir út mánuðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×