Innlent

Fimmtán ára piltur dæmdur - Stappaði á andliti liggjandi manns

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Fimmtán ára gamall piltur var dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness fyrir líkamsárásir og innbrot. Hann játaði sök fyrir dómi.

Hann réðst á pilt í nóvember í fyrra fyrir utan verslunarmiðstöðina Fjörðinn og kýldi hann nokkrum höggum í andlitið þar til hann féll í jörðina og þá sparkaði nokkrum spörkum í höfuð hans liggjandi og stappaði í nokkur skipti á höfðinu og sparkað einu sparki í klof hans.

Í apríl síðastliðinn braut hann inn í söluturn með því að brjóta rúðu og fara inn í söluturninn og þaðan stal hann sígarettum. Hann réðst líka á tvo aðra með þriggja daga millibili í apríl. Hann stal líka nokkrum munum úr verslun Hagkaups í maí, samtals að verðmæti um 15 þúsund krónum.

Pilturinn sagði fyrir dómi að hann sæi eftir brotum sínum en hann hafi enga afsökun fyrir háttsemi sinni. Ákvörðun um refsingu yfir honum var frestað og fellur hún niður ef pilturinn heldur skilorð í tvö ár. Í niðurstöðum dómsins segir að við ákvörðun refsingarinnar hafi verið litið til ungs aldurs piltsins og að hann hafi dvalist á meðferðarheimili í fjóra mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×