Innlent

Íslendingur vann 103 milljónir í Víkingalottó

JHH skrifar
Það var stálheppinn Íslendingur sem var einn af þremur vinningshöfum dagsins í Víkingalottói og vann sér inn rúmlega 103 milljónir króna. Þetta er í 21. skipti sem fyrsti vinningur í Víkingalottóinu kemur til Íslands og sá næsthæsti til þessa.

Hæsti vinningur sem Íslendingur hefur hlotið í Víkingalottóinu er 107.5 milljónir. Það var í mars síðastliðnum og var vinningsmiðinn seldur í Olís á Akureyri.

Lottótölurnar voru 1 3 4 13 27 31. Bónustölurnar voru 39 og 42 og ofurtalan var 37.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×