Innlent

Borgin þurfi flugvöll til að sinna skyldum sínum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Reykjavíkurflugvöllur.
Reykjavíkurflugvöllur.
Greiðar flugsamgöngur landsbyggðarinnar til Reykjavíkur eru forsenda þess að borgin geti gegnt hlutverki sínu sem höfuðborg landsins alls. Þetta segir í bókun sem bæjarstjórn Akureyrar samþykkti á fundi sínum í gær þar sem rædd var nýútkomin skýrsla KPMG um áhrif þess að færa flugvöllinn úr Vatnsmýri.

Bæjarstjórn Akureyrar minnir í bókuninni á að í höfuðborginni séu höfuðstöðvar stjórnsýslu Íslands auk fjölda opinberra viðskipta-, mennta-, menningar- og heilbrigðisstofnana sem eiga þar einnig sínar höfuðstöðvar. Þá segist bæjarstjórnin hvetja borgarstjórn Reykjavíkur til að hafa framangreind atriði í huga við umfjöllun um framtíðarstaðsetningu flugvallarins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×