Innlent

Daði nýr formaður Vg í Reykjavík

Nýkjörinn stjórn Vg í Reykjavík. Daði Heiðrúnarson Sigmarsson er þessi í grænu peysunni.
Nýkjörinn stjórn Vg í Reykjavík. Daði Heiðrúnarson Sigmarsson er þessi í grænu peysunni.
Daði Heiðrúnarson Sigmarsson var kjörinn formaður Vinstri grænna í Reykjavík í gærkvöldi. Fráfarandi formaður er Líf Magneudóttir.

Raunar var stjórnin öll kosin eftir uppstillingu samkvæmt tilkynningu frá flokknum. Aðrir sem voru kjörnir í stjórn félagsins voru eftirfarandi: Anna Friðriksdóttir, Eyrún Eyþórsdóttir, Jana Salóme Jósepsdóttir, Magnús Helgason, Níels Alvin Níelsson og Vigdís Hlíf Sigurðardóttir.

Varamenn sem voru kosnir voru: 1. Einar Gunnarsson 2. Þorgerður Agla Magnúsdóttir

Aðalfundurinn samþykkti svo eftirfarandi ályktanir:

Almenn stjórnmálaályktun

Aðalfundur Vinstri grænna í Reykjavík fagnar margvíslegum árangri ríkisstjórnarinnar á kjörtímabilinu en hún tók við afleitu búi á erfiðum tímum. Þó bati efnahagslífsins sé umtalsverður og samfélagið tekið að glæðast á ný er enn margt óunnið í ýmsum framfaramálum. Má þar nefna að rammaáætlun hefur enn ekki verið samþykkt, að enn er óviðunandi launamunur kynjanna og brýn þörf á að gera átak í að uppræta kynbundið ofbeldi; að enn á eftir að breyta fiskveiðistjórnunarkerfinu, stoppa í göt í velferðar- og heilbrigðiskerfinu, ný stjórnarskrá hefur enn ekki litið dagsins ljós og ESB-umsóknarferlið vomir enn yfir þjóðinni. Ennfremur á Ísland eftir að segja sig úr hernaðarbandalaginu NATÓ.

Nú styttist í næstu Alþingiskosningar en á kosningavetri hægir stundum á löggjafarstarfi. Á síðustu árum höfum við fengið staðfestingu á því hvað hægri öflin í landinu standa fyrir. Þau hafa haft á stefnuskrá sinni stórfelldan almennan niðurskurð, uppsagnir opinberra starfsmanna, niðurskurð í velferðarkerfinu og skattalækkanir sem gagnast mestmegnis fyrir hina efnameiri. Enn eru hægri menn tilbúnir að ganga á auðlindir náttúrunnar með stóriðjuáform sín og í skammsýni sinni virkja á kostnað komandi kynslóða. Sjónarmið og stefna Vinstri grænna hefur því aldrei verið meira aðkallandi en einmitt nú og brýnt að VG verði áfram í ríkisstjórn á næsta kjörtímabili. Hafa Vinstri græn staðið fyrir réttlátari leið úr efnahagserfiðleikum þjóðarinnar, leið sem fært hefur byrðarnar á breiðu bökin og hlíft hinum efnaminni.

Á okkur hefur dunið linnulaus áróður afturhaldsafla og sjálftökumanna sem reyna með öllum tilrækum ráðum að gera VG tortryggileg og sá sundrungu í okkar raðir. Með góðri samstöðu er hægt að sigrast á þessum áróðri. Það er mikilvægt að Vinstrihreyfingin – grænt framboð fari vígreif í næstu kosningar. Flokkurinn þarf ekki að skammast sín fyrir verk sín eða stefnu. Hann á að vinna ötullega áfram að því að byggja hér sjálfbært samfélag jöfnuðar með félagslegt réttlæti, kvenfrelsi, sjálfstæða utanríkisstefnu og umhverfisvernd að leiðarljósi.

Ályktun um fyrirkomulag forvals

Aðalfundur Vinstri grænna í Reykjavík samþykkir að halda forval Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs vegna vals á framboðslista flokksins í báðum Reykjavíkurkjördæmum, laugardaginn 24. nóvember 2012. Skal forvalið vera bindandi fyrir efstu sex sætin. Nánari reglur skulu samþykktar á félagsfundi í samræmi við samræmdar lágmarksreglur VG.

Ályktun um þjóðaratkvæðagreiðslu um nýja stjórnarskrá Aðalfundur VGR, haldinn 8. Október 2010 fagnar því tækifæri sem þjóðin fær til að móta nýja stjórnarskrá í þjóðaratkvæðagreiðslu 20. október nk. Fundurinn hvetur alla landsmenn til að nýta kosningarrétt sinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×