Styttist óðum í íslenskar rafbækur BBI skrifar 14. september 2012 16:29
Hjá Eymundsson er nú verið að leggja lokahönd á forritun svo hægt sé að gefa íslenskar bækur út á rafrænu formi. Kerfið ætti að verða tilbúið fyrir lok mánaðarins og þá fara íslenskir titlar dúkka upp á rafrænu formi. „Við erum rétt að klára að leysa ákveðin tæknileg vandamál. Það ætti að takast á næstu dögum og þá getur þetta verið komið í loftið innan tveggja vikna," segir Ingþór Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Eymundsson. Það er meiriháttar mál að breyta prentaðri bók í rafrænt eintak. Ingþór tekur eitt dæmi af vandamáli sem skapast: Í prentuðum eintökum er orðum sem passa ekki í eina línu oft skipt upp með bandstriki. Þannig lendir orðið í tveimur línum. Þegar bókin er komin í rafrænt form riðlast öll uppröðun og blaðsíðutal. Þannig lenda orðin gjarna í einni línu í rafrænu útgáfunni. Bandstrikið heldur sér engu að síður. Því þarf að fara yfir alla bókina og taka út óþarfa bandstrik. „Þetta er bara eitt dæmi," segir Ingþór. „Svo þetta getur orðið mjög kostnaðarsamt. Allt að 15-20 þúsund krónur fyrir hvern titil." Ingþór útskýrir að prentunarkostnaður sé ekki nema lítið brot af kostnaði við útgáfu bóka. Því geta íslenskir lestrarunnendur ekki búist við umfangsmiklum verðlækkunum í kjölfar rafbókavæðingarinnar. „Það er samt allt undir útgefendunum komið. En ég býst ekki við því," segir hann.
Mest lesið Úlfar hættir sem lögreglustjóri Innlent Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Innlent Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Innlent Dr. Bjarni er látinn Innlent Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Innlent Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Innlent Þakkantinum var haldið saman með kústskafti Innlent Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Innlent Lýsa martraðakenndri leigubílaferð upp í Bláfjöll Innlent Nú má heita Gúníta Ljósynja Dawn Innlent Fleiri fréttir Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Vill deila þekkingu á jarðvarma með Úkraínu Bað forseta að taka „stjórnarliða á skólabekk og tukta þá til“ Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Blindir vilja Hljóðbókasafnið heim Stjórnarandstaða kvartar undan starfi í velferðarnefnd Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Úlfar hættir sem lögreglustjóri Ráðherra hafnaði loftslagsrannsókn vegna ófullnægjandi lagaramma Hafnar því alfarið að hafa lekið gögnunum Nú má heita Gúníta Ljósynja Dawn Fólk varað við aukinni hættu á gróðureld Sala á Íslandsbankabréfum hafin og Jón Óttar sakar Ólaf Þór um leka Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Miðhúsabraut lokuð eftir að ekið var á vegfaranda á hlaupahjóli Yfir þrjú hunduð eftirskjálftar Mál Oscars sé barnaverndarmál en ekki útlendingamál Bein útsending: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Vara við aukinni hættu á gróðureldum á Austurlandi Stór skjálfti rétt hjá Grímsey Þakkantinum var haldið saman með kústskafti Dr. Bjarni er látinn Kristrún á leiðtogafundi um varnarmál: Þjóðirnar í Norður-Atlantshafi þurfi að sýna forystu Lögreglan á Austurlandi tók þátt í stórri alþjóðlegri lögregluaðgerð Lýsa martraðakenndri leigubílaferð upp í Bláfjöll Daði ekki í stöðu til að meta hvaða fundir eru mikilvægari en aðrir Eyjamenn eigi Heimaklett og engin innistæða fyrir kröfum ríkisins Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Sjá meira