Vel yfir hundrað tonn komu á sjóstöng BBI skrifar 31. ágúst 2012 11:50 Mynd úr safni. Mynd/Stefán Karlsson
Í sumar hafa 130 tonn af fiski veiðst á sjóstangaveiðimótum samkvæmt upplýsingum frá Fiskistofu. Tölurnar eru ekki endanlegar, enn á eftir að halda nokkur mót og því munu tölurnar enn hækka. Víðsvegar um landið eru haldin sjóstangveiðimót yfir sumartímann. Afli sem veiðist á þess konar mótum telst ekki til aflamarks, þ.e. ekki þarf kvóta til veiðanna. Þetta kemur fram í 2. málsgrein 6. greinar laga um stjórn fiskveiða. Aflinn sem hefur veiðst í sumar á umræddum mótum nemur 130 tonnum. Þar af er þorskurinn langfyrirferðarmestur, eða rúm 120 tonn. Ufsi og keila fylgja á eftir. Makríllinn taldi hins vegar ekki nema rúm 200 kíló.Tugir milljóna Samkvæmt upplýsingum frá Reiknistofu fiskmarkaða var meðalverð á öllum handfæraafla í sumar um 288 kr/kg. Gróft áætlað má því ímynda sér að ef aflinn af sjóstangveiðimótum sumarsins hefði ratað á fiskmarkaði hefði hann farið á rúmar 37 milljónir króna. Þar sem samsetning afla er afar misjöfn skal tekið fram að þetta er afar ónákvæm ágiskun.Veiðar til eigin neyslu Ofangreindar tölur taka aðeins mið af sjóstangaveiðimótum. Þar kemur ekki fram hve mikið hefur veiðst í frístundaveiðum fólks til eigin neyslu, en samkvæmt 6. grein laga um stjórn fiskveiða má fólk veiða lítið magn til eigin neyslu án þess að eiga kvóta. Gera má ráð fyrir að nokkuð magn hafi veiðst á þann hátt í sumar.
Mest lesið Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Innlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Erlent Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Innlent Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Innlent Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Innlent Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Innlent „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Innlent Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Innlent Fleiri fréttir Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Enn enginn grunaður um spellvirkin við Grafarvogskirkju Ekki falsaðir peningar heldur gervipeningar Íris Dröfn settur sýslumaður á Austurlandi „Miklar vendingar núna í málefnum bæjarins“ Verða höfð með í ráðum vegna niðurrifsins við Sæbraut „Lögregla á að bregðast við refsiverðri háttsemi“ Ákærður fyrir manndráp af gáleysi vegna áreksturs þar sem tveir létust Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Gyðingaandúð, netsala áfengis og skólahald í Grindavík Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Tugir innbrota til rannsóknar hjá lögreglu Alvarleg líkamsárás á borði miðlægrar rannsóknardeildar „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Lítil bjartsýni á úrslitastundu Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Grobba sig af stolnum trjám „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Óskiljanleg áfengissala, óvissa fyrir úrslitastund og úrkoman endalausa Dæmdur fyrir heimilisofbeldi en sagðist sjálfur hafa verið eins og gísl Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana „Stundum koma upp atvik“ Langflestir umsækjendur frá Úkraínu Sjá meira