Innlent

Áfram mikil makrílgegnd við landið

BBI skrifar
Mynd/Óskar P.
Endanlegar niðurstöður úr rannsóknarleiðangri Íslands, Noregs og Færeyja staðfesta að makríll er áfram í miklu magni við strendur landsins. 29% af heildarmagni makríls í Norðaustur Atlantshafi fannst innan íslenskrar efnahagslögsögu.

Rannsóknirnar voru gerðar í sumar á fjórum skipum. Magn makríls á svæðinu var metið með upplýsingum um afla í togum sem tekin voru með reglulegu millibili.

Rannsóknirnar staðfesta víðáttumikla útbreiðslu makrílsstofnsins í Norðaustur Atlantshafi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×