Pétur Blöndal uppgötvar afl Youtube Karen Kjartansdóttir skrifar 26. ágúst 2012 20:27
Pétur Blöndal þingmaður vinnur nú að því að koma tillögum sínum sem eiga að koma í veg fyrir peningahringekjur á myndabandasíðuna Youtube. Myndböndin verða á þremur tungumálum og eru Bandaríkjamenn þegar byrjaðir að vinna að þeim. Myndböndin eru ný komin inn á vefinn en hafa nú þegar fengið talsvert áhorf. Með þeim er Pétur að fylgja eftir eftir tillögum sínum sem samþykktar voru í sumar á þingi Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu eða ÖSE. Tillögurnar miða að því að koma í veg fyrir hringferla peninga með raðeignarhaldi og innistæðulausa eignabólu fyrirtækja. „Ég var að uppgötva það mikla afl sem er í Youtube. Ég sem sagt er þarna með smá fyrirlestur, örstuttan um hlutverk eiginfjár hjá hlutafélögum og svo að það sé villa í kerfinu sem gerir það að verkum að hægt er að búa til eigið fé með því að láta peningana fara í hring. Þetta er mjög alvarleg villa í hlutabréfaforminu sem er annars óskaplega sniðug uppfinning. Það þarf að laga hana en það þarf að laga hana alþjóðlega því hlutafélög eru öll orðin alþjóðleg meira og minna," segir Pétur. Pétur segir markmið tillagnanna ekki ná fram að ganga nema þær séu samræmdar meðal allra land og því verði að koma þeim yfir á fleiri tungumál. En þýsku útgáfuna setti hann á vefinn í dag og von er á enski útskýringu innan tíðar. Pétur segir Þjóðverja og Bandaríjkamenn þegar hafa sýnt málinu áhuga. „Þetta er orðið verkefni hjá þeim, þeir eru svo skipulagðir og þetta er eitt af þeim verkefnum sem þeirra þing er að vinna í," segir Pétur. Pétur telur að youtube geti verið aflmikið tæki til að laga þessa veilu. "Ég er að vona það, því þetta er eitthvað sem við verðum að laga, ég held því fram að þetta sé ein af meginástæðunum fyrir hruninu á Íslandi," segir Pétur. En voru Íslendingar öðrum fremri í þessum brellum? „Þeir gengu kannski svolítið langt en þetta er út um allan heim, ég bendi á að Deutsche bank á í flest öllum stórfyrirtækjum heims og flest öll stórfyrirtæki eiga hlutabréf í Deutsche bank," segir Pétur.
Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum Erlent Fleiri fréttir Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Sjá meira