Hannar skartgripi á Barnaspítalanum Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 16. júlí 2012 19:30
Tíu ára stúlka sem hefur verið rúmliggjandi á Barnaspítalanum í sumar styttir sér stundir með því að hanna skartgripi. Hún vonast til að geta safnað sér fyrir iPad. Máney Dís hefur legið á Barnaspítala Hringsins síðan í byrjun júní en þá greindist hún með sjálfsofnæmissjúkdóm. Þegar hún sá fram á að fá ekki að verja sumrinu úti í sólinni með jafnöldrum sínum ákvað hún að nota tímann og fara að búa til skartgripi. Hún segir það koma í veg fyrir að sér leiðist. Hvað ertu búin að vera að gera á þessum tíma? „Ég er búin að vera að búa til hálsmen og armbönd," segir Máney. Hvernig hefur það gengið? Þú ert að selja er það ekki? „Það hefur gengið mjög vel." Skartgripina selur Máney á mjög vægu verði en hún vonast til að geta selt nóg til að hún geti keypt sér ákveðinn hlut. „Mig langar að safna mér fyrir iPad," segir Máney. Máney var búin að vera veik í í tæpar tvær vikur þegar hún kom á Landspítalann í byrjun júní. „Hún var búin að vera með gubbupest í 13 daga, búin að fara til læknis þrisvar sinnum og alltaf sagt bara að drekka Gatorade," segir Dagbjört Hildur Torfadóttir. „Svo komum við niður á bráðamóttöku og þeir tóku blóðprufur. Þá kom í ljós að hún var mjög blóðlítil og með næringarskort. Um nóttina missti hún mikið blóð og þeir lögðu hana inn og hún var greind nokkrum dögum seinna með Chron's." Á þeim tíma sem Máney hefur verið á Barnaspítalanum hefur ýmislegt gengið á. Hún hefur lent á gjörgæslu og reyndar hafa verið nokkrar meðferðir. Hún hefur nær algjörlega verið rúmliggjandi og fengið næringu í æð. Móðir hennar vonast til að það fari að gang berur á næstunni. Máney hefur sýnt mikið æðruleysi gagnvart veikindum sínum. „Hún er búin að brosa allan tímann það er bara þannig," segir Dagbjört. „Hún er alltaf að. Að koma henni í háttinn er bara vesen. Svo er hún náttúrulega á sterum líka, þannig að hún er svolítið full af orku og erfitt með að sofa. Þannig að þetta er fínt og þetta styttir henni stundina en hún hefur ekkert annað að gera." Skartgripirnir hennar Máneyjar eru til sölu á fésbókarsíðu móður hennar. Þá geta áhugasamir einnig nálgast þá með því að senda póst á netfangið: dagbjorth@ru.is.
Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Fleiri fréttir Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm Sjá meira