Konum á Austurlandi gert að fæða á Akureyri eða í Reykjavík Kjartan Hreinn Njálsson skrifar 18. júlí 2012 21:42 Fæðingardeildin á fjórðungssjúkrahúsinu á Neskaupsstað verður lokuð frá og með mánudegi.
Fæðingardeildin á fjórðungssjúkrahúsinu á Neskaupsstað verður lokuð frá og með mánudegi. Óvíst er hvort að deildin muni opna fyrir mánaðarmót en þá verða vaktaskipti. Þungaðar konur á svæðinu eru ráðþrota og gagnrýna heilbrigðisyfirvöld fyrir að koma ekki til móts við sig. Vandamálið kom upp þegar skurðlæknir sem átti að vera á vakt næstu tvær vikur forfallaðist. Þá var konunum tilkynnt að deildin yrði lokuð. Þær sem áttu að eiga á næstu vikum var bent á að leita á fæðingardeildir á Akureyri eða í Reykjavík. Vísir ræddi í kvöld við eina af þessum konum. Hún vildi ekki koma fram undir nafni, en segir ástandið vera afar slæmt. Hún sakar heilbrigðisyfirvöld um forkastaleg vinnubrögð og segir það vera fáránlegt að fjölskyldunni sé tilkynnt um málið aðeins fjórum dögum fyrir fæðingu. Ríkið mun greiða ferðakostnað, kjósi þær að fara á aðrar fæðingardeildir. Það sé hins vegar ekki æskilegt að fljúga þegar langt er liðið á þungunina. Húsnæðiskostnaður er hins vegar ekki greiddur. Þannig þarf hún að annað hvort að leita til vina eða ættingja til skjóta skjóli yfir sig og eiginmann sinn eða leita á hótel með tilheyrandi kostnaði sem ríkið greiðir ekki. Hún bendir á að barnshafandi konum sé yfirleitt gert að yfirgefa fæðingardeildir innan sólarhrings eftir að barnið er komið í heiminn. Þannig mun hún annað hvort þurfa að aka langa vegalengd með barnið eða fljúga með nýfætt barn. Þá eru ýmsar breytur sem geta flækt málin enn frekar. Verði tafir á fæðingunni neyðist hún til að vera lengur að heimann. Þetta hafi óneitanlega í för með sér tekjuskerðingu af einhverju tagi. Þá sé heldur ekki einfalt að fá bílaleigubíla og félagsbústaði á þessum tíma árs. Hún segir kostnaðinn vera mikinn og að hann sé enn erfiðari þegar hann var ófyrirséður með öllu. Hún segir þessa þjónustu vera fyrir neðan allar hellur. Fjölskyldan þurfi nú að leggja höfuðið í bleyti og finna lausn á því hvernig best sé að hagræða fæðingunni.
Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Sjá meira