Næstum eitt skemmtiferðaskip á dag BBI skrifar 19. júlí 2012 16:26 Mynd/Valgarð
Höfuðborgarbúar hafa ekki farið varhluta af miklum fjölda skemmtiferðaskipa við hafnir borgarinnar í sumar. Alls koma 82 skip með 100 þúsund manns yfir sumarið. Það er næstum því eitt skip á dag miðað við tímabilið júní-september. Í fyrra komu um 64 þúsund manns með skemmtiferðaskipum. Það er því rúmlega 56% aukning á einu ári. Að sögn Gísla Gíslasonar, hafnarstjóra Faxaflóahafna, eru skipin í raun ekki mikið fleiri en þau eru töluvert stærri og lengri. Gísli segir að að efnahagsáhrifin af ferðamönnunum séu gífurleg. „Þetta eru eflaust svona 1,5 til 2 milljarðar allt í allt," segir hann. Árið 2009 eyddu ferðamenn á skemmtiferðaskipum um 76 evrum á dag, eða um 12 þúsund. Að sögn Ásgústs Ágústssonar, markaðsstjóra Faxaflóahafna, gengur sala í kring um ferðamennina vel, gengið er svipað og ekki ólíklegt að þeir eyði sambærilegum upphæðum í ár. Auk þess er margs konar afleiddur hagnaður af skemmtiferðaskipum. Faxaflóahafnir taka hafnargjöld. Ríkið tekur vitagjöld og tollafgreiðslugjöld. Á skipin þarf að kaupa kost og olíu og margs konar þjónustu við að taka við rusl og dæla úr klósettum. „Ég sé bara út um gluggan hjá mér núna eru sjö bílar frá hreingerningarfyrirtæki að taka eitt skip í gegn," segir Ágúst. Greint hefur verið frá því að ferðamenn sjáist í tölum um farsímanotkun á landinu. Efnahagsleg áhrif ferðamannana eru því margslungin og víðferm. Rekstraraðilar í veitingabransanum í Reykjavík hafa haft af því áhyggjur að öllu þessu ferðafólki sé mokað upp í rútur og því ekið beint út á land. Ágúst segir að það sé ekki raunin í öllum tilvikum. Það sé hins vegar rétt að milli 60-70% fari beint í ferðir út á land. Afgangurinn gangi hins vegar frá borði og spóki sig í Reykjavík.
Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Sjá meira