Segir laxarökin ekki virka á alla Þjórsá 26. apríl 2012 20:00
Örlög rammaáætlunar eru nú komin í hendur atvinnuveganefndar Alþingis. Formaður þingnefndarinnar, Kristján L. Möller, efast um laxarök gegn virkjunum í Þjórsá og segir að skapa verði þverpólitíska sátt ef rammaáætlun eigi að lifa af ríkisstjórnina. Fyrri umræðu um rammann lauk á Alþingi í vikunni og er málið nú komið inn á borð atvinnuveganefndar. Ríkisstjórnin er gagnrýnd fyrir að færa rammaáætlun úr faglegu ferli yfir í pólitískt og er þá meðal annars bent á að hún hafi fært þrjár virkjanir í neðri Þjórsá úr nýtingarflokki yfir í biðflokk. Spurður hvort hann styðji þá ákvörðun svarar Kristján í viðtali í fréttum Stöðvar 2: "Ég hef sagt það, - mín skoðun var sú - að drögin, eins og þau voru kynnt í umhverfismati áætlana, hefði átt að leggja fyrir þingið og þingið hefði átt að fá að takast á við það." Með öðrum orðum: Ráðherrarnir áttu ekki að færa virkjanir til í lokaferlinu. "Ég hef hlustað á þessi rök sem komið hafa fram, reyndar mjög seint, laxarökin, og ég hlusta á þau gagnvart Urriðafossi. Mér finnst þau ekki virka gagnvart efri virkjununum," segir Kristján. Tveir virkjanir eru áformaðar fyrir ofan Urriðafossvirkjun, Holtavirkjun og Hvammsvirkjun. Kristján segir að ef ekki næst víðtæk sátt um rammaáætlun blasi við að næsta ríkisstjórn muni einfaldlega breyta henni. Þannig séu lögin. Þessvegna sé mikilvægt að menn reyni að vinna rammaáætlun þannig að þverpólitísk sátt verði um hana. "Hún sé þá ekki rammaáætlun viðkomandi ríkisstjórna og þær séu teknar og breytt. Það var ekki hugmyndin með rammaáætlun. Rammaáætlun átti að vera til þess að skapa sem mesta sátt um hana og þessu deilumáli yrði þá lokið."
Mest lesið Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Enn óljóst hvað verður um umsóknina Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Fleiri fréttir Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sjá meira