Vekja athygli á auglýsingum á þakviðgerðum 27. apríl 2012 13:51 Mynd úr safni mynd/Villi
Neytendasamtökin vilja vekja athygli á auglýsingum frá Byggingarfélaginu Reisir ehf. sem auglýsa þakviðgerðir með svokallaðri Pace aðferð. Samtökin segjast hafa fengið nokkur mál inn á borð hjá sér þar sem illa hefur verið gengið frá viðgerðum á húsþökum hjá fólki. „Maður nokkur fékk tilboð í Pace gúmmíhúðun á þak húss síns frá Reisi ehf. Tilboðið hljóðaði upp á rúmlega 600.000 kr. og lagði fyrirtækið mikla áherslu á 10 ára ábyrgð og skjót viðbrögð við kvörtunum. Eftir að þakið hafði verið hreinsað og húðað með grárri Pace gúmmíhúð kom í ljós að vinnan var ekki fullnægjandi þar sem allvíða sást í rauðar skellur og á mörgum stöðum sást í rauða naglahausa, en þakið var rautt fyrir. Maðurinn hringdi þá í Reisi ehf. og var starfsmaður sendur á staðinn sem viðurkenndi að illa hefði verið að verki staðið og eyddi heilum degi í að bletta það sem þurfti. Fljótlega kom í ljós að þakið hafði verið blettað með aðeins ljósari lit og er því allt í ljósum skellum. Maðurinn hafði aftur samband við Reisi ehf. og kvartaði en var tjáð að þetta tæki tíma að jafna sig sem það hefur þó enn ekki gert. Maðurinn sendi tölvupósta til fyrirtækisins en hafði ekki erindi sem erfiði og leitaði því næst aðstoðar Neytendasamtakanna," segir vef samtakanna. Neytendasamtökin hafa sent þrjú bréf til fyrirtækisins sem öll voru endursend og þá hafa forsvarsmenn fyrirtækisins ekki látið ná í sig. Neytendasamtökin segja að það sé undartekning að seljendur sýni ekki samstarfsvilja þegar kemur að því að leysa úr ágreiningi. Í ljósi þessa geta þau ekki mælt með því að fólk eigi viðskipti við fyrirtækið.
Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira