Vilja að skýrslu sérstaks saksóknara verði vísað frá 27. apríl 2012 14:45 Sigurður Einarsson og Hreiðar Már Sigurðsson er taldir hafa skipulagt Al-Thani fléttuna, en báðir eru ákærðir fyrir umboðssvik og þeir Ólafur og Magnús fyrir hlutdeild í brotum þeirra. Þá eru allir fjórir ákærðir fyrir markaðsmisnotkun.
Verjendur fyrrverandi stjórnenda Kaupþings í svokölluðu al-Thani máli kröfðust þess fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í dag að dómurinn felli úr málskjölum greinargerð um rannsókn á málinu sem sérstakur saksóknari gerði, áður en ákært var í því. Í máli Gests Jónssonar, verjanda Sigurðar Einarssonar fyrrverandi stjórnarformanns Kaupþings, kom meðal annars fram að í greinargerðinni kæmu fram ásakanir um sekt og fullyrðingar sem ekki væri eðlilegt að kæmi fram í greinargerð þar sem rannsókn er lýst. Gestur sagði að greinargerðin væri ekki skýrsla með lýsingu á rannsókn málsins heldur skriflegur rökstuðningur fyrir þvi að hinir ákærðu væru sekir. Björn Þorvaldsson, saksóknari hjá Sérstökum saksóknara, fór fram á að kröfu verjendanna yrði vísað frá en til vara að framlagning greinargerðarinnar væri heimiluð. Björn sagði að krafan um að greinargerðin yrði felld út úr málsskjölum hefði þurft að koma fram við þingfestingu málsins, en hún var lögð fram nokkru síðar eða við fyrirtöku. Ef krafan yrði tekin til greina gætu menn eftir það komið fram hvenær sem er við meðferð málsins fyrir dómi og krafist þess að einhver gögn yrðu felld úr málsskjölum. Al-Thani málið snýst um meinta markaðsmisnotkun og umboðssvik í aðdraganda að hruni Kaupþings. Hinir ákærðu eru Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður bankans, Ólafur Ólafsson, einn aðaleigenda bankans, og Magnús Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings í Lúxemborg. Þeir Hreiðar og Magnús voru viðstaddir málflutning í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.
Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira