Össur stingur upp á að hluti veiðileyfagjalds fari í markaðsstarf 27. apríl 2012 16:39 Össur ávarpar fundargesti í dag.
Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, varpaði fram þeirri hugmynd í ávarpi sínu í dag á ársfundi Íslandsstofu að hluti af veiðileyfagjaldi, eða á bilinu 500 til 600 milljónir króna, yrði notaður til þess að stórefla markaðsstarf í þágu íslensks sjávarútvegs. Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu kemur fram að Össur hafi sagt markaði íslenskra sjávarafurða líka vera auðlind, líkt og sjóinn sjálfan, því þar ráðist hvað fáist fyrir aflann. „Hann rakti markvisst markaðsstarf Norðmanna sem eyða á hverju ári sem nemur 9 milljörðum króna til markaðsstarfs af þessu tagi. Sagði utanríkisráðherra að færu Íslendingar sömu leið þá yrði innan vébanda Íslandsstofu komið á fót 7 manna sérsveit sem ynni að 30-40 sjávarútvegsverkefnum á ári sem miðuðu að því að styrkja ímynd íslenskra fiskafurða og auka útflutning." „Utanríkisráðherra hvatti sömuleiðis til áframhaldandi sóknar í þágu lista og skapandi greina á Íslandi," segir ennfremur. „Hann sagði mikilvægt að flétta þessa vaxandi og mikilvægu atvinnugrein betur inn í starf Íslandsstofu en þegar hefði náðst góður árangur í að stilla saman menningarkynningu Íslandsstofu, sendiráða og kynningarmiðstöðva listgreina gegnum fagráð lista og skapandi greina. Utanríkisráðherra sagði ráðuneyti utanríkismála, mennta- og menningarmála og iðnaðar, sem hvert um sig veita ákveðnu fjármagni til málaflokksins, reiðubúin til þess að leggja sitt af mörkum, mögulega með því að slá framlögum sínum saman og láta þau renna til Íslandsstofu í því skyni að gera tilraun til að auka enn samræmingu og samlegðaráhrif." Þá segir að aðalfundur Íslandsstofu hafi verið fyrsti fundurinn eftir heilt starfsár frá því að stofnunin tók til starfa á grundvelli nýrra laga frá Alþingi. „Utanríkisráðherra hrósaði starfsfólki og hinum fjölmörgum ólíku aðilum sem tengjast Íslandsstofu fyrir frábæran árangur sem þegar hefði náðst í ferðaþjónustu og nefndi í því samhengi sérstaklega landkynningarátakið Inspired by Iceland og framhald þess „Ísland allt árið." Einnig þakkaði hann Íslandsstofu fyrir vandaða stefnumótunarvinnu sem hann sagði vísa til að skila góðum árangri í framtíðarstarfi."
Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira