Gífurleg umhverfisáhrif fyrirsjáanleg af tilkomu sæstrengs 29. apríl 2012 16:57
Náttúrverndarþing 2012 varar sterklega við einhliða kynningu Landsvirkjunar og fleiri aðila á kostum þess að leggja sæstreng frá Íslandi til Bretlandseyja eða meginlands Evrópu. Í tilkynningu frá þinginu segir að það sé þagað þunnu hljóði um gífurleg umhverfisáhrif sem yrðu hérlendis af slíkri framkvæmd með stórauknum þrýstingi á byggingu virkjana og óhjákvæmilegri lagningu öflugra háspennulína til viðbótar þeim sem fyrir eru, auk mögulegra hækkana á raforkuverði til almennings. Svo segir ennfremur: „Náttúruverndarþing krefst þess að upplýsingar um líkleg umhverfisáhrif af slíkri framkvæmd hafi forgang við frekari skoðun málsins og niðurstöður liggi fyrir áður en stofnað sé til kostnaðar við athugun á öðrum þáttum málsins. " Hér fyrir neðan má svo lesa greinagerðina:Náttúruverndarþing 2012 bendir á að til umræðu er sæstrengur sem að lágmarki gæti flutt 700–1000 MW af nýtanlegu afli, en nú hafa alls verið virkjuð hérlendis um 2500 MW. Af þessu sést um hversu tröllaukna framkvæmd hér er verið að tala, sem taka myndi til sín stóran hluta af hugsanlegri viðbótarorku samkvæmt rammaáætlun.Tæknilegar forsendur fyrir lagningu og rekstri slíks sæstrengs eru afar óvissar, þar eð um væri að ræða fyrstu framkvæmd sinnar tegundar á heimsvísu yfir úthaf og allt niður á 1000 metra dýpi, sem er tvöfalt meira en þekkist til þessa. Bilanir á slíkum strengjum eru vaxandi vandamál erlendis.Ekki hefur verið sýnt fram á hverjar séu viðskiptalegar forsendur slíkrar framkvæmdar, en samt hefur meintur hagur af lagningu sæstrengs þegar verið útmálaður í sterkum litum sem eitt stærsta viðskiptatækifæri Íslendinga hingað til.Samanburður við sölu rafmagns um sæstreng til og frá Noregi er afar misvísandi, stærð virkjaðs afls þarlendis tífalt meira en hérlendis og miðlunargeta að baki norska raforkukerfisins margföld á við það sem hér er. Umræðan er síðan kórónuð með staðhæfingum um að rafmagn til flutnings um slíkan streng geti í umtalsverðum mæli komið frá vindmyllum á landi eða í sjó, en umhverfisáhrif þeirra eru lítt þekkt hérlendis.
Mest lesið Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Enn óljóst hvað verður um umsóknina Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Fleiri fréttir Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sjá meira