Fjármálastjóri í Kópavogi á sérkjörum við lóðakaup 2. maí 2012 09:00 Guðrún Pálsdóttir fyrrverandi bæjarstjóri Kópavogs greiddi gatnagerðargjöld með vaxtalausum afborgunum og borgaði lægri vexti en aðrir í tíð sinni sem fjármálastjóri bæjarins. Fréttablaðið/Stefán
Guðrún Pálsdóttir, sem lét af störfum sem bæjarstjóri Kópavogs í febrúar, naut í tíð sinni sem fjármálastjóri bæjarins sérkjara umfram aðra við lóðakaup. Eftir athugun sem endurskoðunarfyrirtækið Deloitte var í fyrrasumar fengið til að gera á innihaldi peningaskáps sem steyptur er í vegg á bæjarskrifstofunum í Kópavogi komu meðal annars í ljós fjögur skuldabréf vegna kaupa Guðrúnar og eiginmanns hennar á einbýlishúsalóð í Jöklalind 5. Bréfin, sem dagsett eru 27. desember 1996, voru upp á samtals 2.586.400 krónur. Vextir, sem ekki byrjuðu að reiknast fyrr en 18. febrúar 1997, voru 6,0 prósent auk verðtryggingar. Aðrir í sömu stöðu greiddu 6,75 til 6,85 prósent í vexti af sínum skuldabréfum vegna lóðakaupa af bænum. Síðar kom í ljós við nánari könnun sem Guðríður Arnardóttir, þáverandi formaður bæjarráðs, lét gera að Guðrún borgaði þess utan enga vexti af 1.105.265 króna gatnagerðargjöldum. Engin sambærileg dæmi fundust. Upphæðina greiddi Guðrún á þremur árum – frá því í nóvember 1999 þar til í nóvember 2002. Mál þetta vó þungt í því að meirihluti Samfylkingar, Vinstri grænna, Næst besta flokksins og Y-lista Kópavogsbúa undirbjó að segja Guðrúnu upp bæjastjórastarfinu fyrr á þessu ári. "Eins og komið hefur fram studdi Samfylkingin ekki bæjarstjóra til áframhaldandi starfa, meðal annars vegna þessa máls," segir Guðríður Arnardóttir um það hvernig brugðist hafi verið við málinu. Núverandi meirihluti Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Y-lista Kópavogsbúa, sem tók við í febrúar, samdi um starfslok Guðrúnar sem bæjarstjóra en réði hana jafnframt í nýja sviðsstjórastöðu sem hún tekur við í haust. Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri vill ekki tjá sig um málið að svo stöddu. Mannleg mistök og tafir á framkvæmdumGuðrún Pálsdóttir segist enga skýringu sjá á lægri vöxtum á skuldabréfunum aðra en að um mannleg mistök hafi verið að ræða. „Því miður veitti ég þessu ekki athygli þegar við skrifuðum undir bréfin. Enda kom þetta mér í opna skjöldu nú 15 árum síðar." Spurð hver hafi tekið ákvörðun um að innheimta ekki vexti af gatnagerðargjöldum, segir hún að vegna deiliskipulagsbreytinga hafi framkvæmdir við hús hennar tafist úr hófi og „því var gert samkomulag við yfirboðara mína um greiðslufyrirkomulag á viðbótargjöldunum." Aðspurð hvort þetta hafi verið venjulegt vinnulag segir Guðrún: „Breytingar af hálfu bæjarins sem skapa tafir hjá lóðarhöfum um lengri tíma hafa ætíð leitt til niðurfellingar vaxta. Og oft skaðabótakrafna af hálfu lóðarhafa." Guðrún segist ekki telja að hún hafi notið kjara, sem öðrum stóðu ekki til boða. Aðspurð hvort hún hafi gefið bæjarfulltrúum skýringar á málinu segir hún: „Fyrrverandi meirihluti skoðaði málið með mér og öðrum embættismönnum."
Mest lesið Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Enn óljóst hvað verður um umsóknina Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Fleiri fréttir Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sjá meira