Íslenskir unglingar ánægðir með líf sitt 2. maí 2012 13:00 Lífsánægja mælist einna mest meðal unglinga hér á landi, en í öllum löndum er hlutfall ánægðra drengja í 10. bekk hærra en stúlkna. Myndin tengist ekki efni fréttarinnar.Fréttablaðið/Stefán
Íslenskir unglingar eru með þeim ánægðustu í heimi. Um 95 prósent unglinga hér á landi segjast ánægðir með líf sitt, samkvæmt niðurstöðum nýrrar, alþjóðlegrar rannsóknar sem birt verður í dag. Einnig er lífsánægja finnskra, belgískra og hollenskra ungmenna með því mesta sem gerist. Rannsóknin, Heilsa og lífskjör skólabarna (Health and Behaviour in School-aged Children, HBSC), var gerð í 43 samanburðarlöndum í Evrópu og Norður-Ameríku. Alls tóku um 200 þúsund unglingar þátt. Á Íslandi var spurningalisti könnunarinnar lagður fyrir tæplega tólf þúsund nemendur í 6., 8. og 10. bekk, sem jafngildir 87 prósentum af heildarfjölda nemenda í þessum bekkjardeildum landsins. Nær allir hollenskir unglingar segjast ánægðir með líf sitt, en hlutfallið er hæst þar í landi. Greinilegt er að munur á lífsánægju kynjanna eykst með aldrinum, en meðal unglinga í 10. bekk voru drengir ánægðari en stelpur í öllum þátttökulöndunum. Könnunin var lögð fyrir hér á landi af Rannsóknarsetri forvarna við Háskólann á Akureyri (HA). Hún er styrkt af Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni og er ætlað veita innsýn í þætti sem stýra heilsu og vellíðan unglinga. Ársæll Arnarsson, prófessor í sálfræði við HA, segir áhugavert að fá þessar niðurstöður til umræðu í samfélaginu í dag. „Þetta eru að mörgu leyti ánægjulegar og mikilvægar upplýsingar,“ segir hann. „Íslendingar hafa gengið í gegnum efnahagslegar þrengingar og er gott að sjá að þrátt fyrir það líður unglingunum okkar flestum mjög vel. Þó hlýtur slakari útkoma eldri stúlkna bæði að vekja fólk til spurninga og athafna.“ Ársæll segir lífsánægju mikilvægan þátt í líðan unglinga, sem ræðst af reynslu og tengslum þeirra við aðra. Góð samskipti við foreldra og vini hjálpi unglingum að takast á við breytingar og yfirstíga vandamál. „Skólinn hefur einnig mikil áhrif á lífsánægju ef börnunum gengur og líður vel í honum. Hamingjusöm æska skilar sér svo í betri félagshæfni og bjargráðum síðar á ævinni.“ Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar líður tyrkneskum, ungverskum, pólskum og grænlenskum unglingum verst af þjóðunum 48. sunna@frettabladid.is
Mest lesið Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Lögregla klippti á plöturnar Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent Fleiri fréttir Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Veðrið haggist ekki að neinu ráði Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Bílvelta í Skötufirði Tímafrek verkefni kennara, umferðaröryggi í Hvalfirði og stemningin á Spáni Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Lögregla klippti á plöturnar Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Slasaðist alvarlega við heyskap Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Sjá meira