Lögreglumaður ber vitni gegn Vítisenglum Jón Hákon Halldórsson skrifar 2. maí 2012 19:45 Einar Marteinsson er einn þeirra sem sitja í gæsluvarðhaldi vegna umrædds dómsmáls.
Hæstiréttur komst í dag að þeirri niðurstöðu að ríkissaksóknara sé hemilt að leiða lögreglumann sem skrifaði skýrslu um starfsemi vélhjólasamtakanna Vítisengla sem vitni fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur í máli sem ríkissaksóknari hefur höfðað gegn sex einstaklingum sem allir tengjast vélhjólasamtökunum. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður komist að þeirri niðurstöðu að ekki mætti leiða lögreglumanninn sem vitni fyrir dóminn. Umrædd skýrsla var skrifuð vegna grófra ofbeldisbrota sem framin voru í lok siðasta árs, lögreglumaðurinn kom að rannsókn þess máls. Ráðist var á konu og hún meðal annars beitt kynferðisofbeldi. Á meðal þeirra sem handteknir voru og sitja í gæsluvarðhaldi vegna málsins er Einar Marteinsson, fyrrverandi leiðtogi Vítisengla á Íslandi. Aðalmeðferð fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í síðustu viku og vildi saksóknari að lögreglumaðurinn sem skrifaði skýrsluna bæri vitni fyrir dómnum. Verjendur sakborninga lögðust gegn þessu og héraðsdómari úrskurðaði að ekki mætti leiða vitnið fyrir dóminn vegna þess að efni skýrslunnar væri almenn umfjöllun um starfsemi Vítisengla og vörðuðu umrætt dómsmál ekki sérstaklega. Hæstiréttur kemst hins vegar að þeirri niðurstöðu að saksóknara sé heimilt að spyrja lögreglumanninn um efni skýrslunnar að því marki sem efnið lýtur að sakargiftum í umræddu dómsmáli.
Mest lesið Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Lögregla klippti á plöturnar Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent Fleiri fréttir Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Veðrið haggist ekki að neinu ráði Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Bílvelta í Skötufirði Tímafrek verkefni kennara, umferðaröryggi í Hvalfirði og stemningin á Spáni Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Lögregla klippti á plöturnar Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Slasaðist alvarlega við heyskap Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Sjá meira