Slökkviliðsstjóri segir heimtufrekju á Bifröst GAR skrifar 30. október 2012 08:00 Núverandi rektor Háskólans á Bifröst segir efndir tólf ára samnings um brunavarnir ekki hafa verið til umræðu í sinni tíð, heldur hafi hann aðeins átt uppbyggilegar samræður við slökkviliðsstjórann um eflingu brunvarna. Fréttablaðið/Vilhelm „
Það á að standa við gerða samninga,“ segir Bjarni K. Þorsteinsson, slökkviliðsstjóri í Borgarbyggð, sem í harðorðu bréfi til byggðaráðs sakar Háskólann á Bifröst um að standa ekki við samning um brunavarnir á Bifröst. Bjarni vitnar til samkomulags sem gert var um síðustu aldamót. Samkvæmt því hafi skólinn á Bifröst átt að útvega frítt húsnæði undir búnað á staðnum. Hann undirstrikar að við þetta hafi aldrei verið staðið. „Heldur var slökkviliðið á sífelldum hrakhólum með búnað sinn, til dæmis í óupphituðum gámi, kaldri skemmu hjá skógræktinni á Hreðavatni og var hann jafnvel geymdur úti við á kerru og mættum við oft á tíðum ótrúlegri heimtufrekju af hálfu skólans varðandi fyrirkomulag þessara mála á staðnum,“ segir Bjarni í bréfinu til byggðaráðs Borgarbyggðar. Aðspurður um þessa meintu heimtufrekju nefnir Bjarni að á tímum hraðrar uppbyggingar á Bifröst hafi þurft að hafa tankbíl á staðnum því ekki hafi verið þar fullnægjandi aðgangur að staðnum. „Við vorum látnir færa tankbílinn til og frá því hann þótti skemma ásýnd staðarins. Þetta var rauður og hvítur Scania-bíll, mjög fallegur,“ segir slökkviliðsstjórinn sem til viðbótar nefnir í bréfi sínu að að búnaður sem átti að fylgja af hálfu Bifrastar hafi að mestu verið ónothæfur „Dagljóst er að þarna var peningum kastað á glæ,“ segir Bjarni áfram í bréfinu, löngu tímabært sé að endurskoða samninginn við Bifröst. „Í dag eru ekki tímar meðvirkni eins og þeir voru hér um slóðir líkt og annars staðar heldur tímar ráðdeildar og gagnsæis þar sem gerðir samningar skuli haldnir af báðum aðilum.“ Bjarni ítrekar við Fréttablaðið að á sama tíma og slökkviliðinu sé gert að spara kosti brunavarnirnar á Bifröst Borgarbyggð mikið fé. Slökkviliðið hafi sjálft þurft að útvega búnað sem vantaði og tekið húsnæði á leigu yfir hann. Bryndís Hlöðversdóttir, rektor á Bifröst, segir brunavarnir þar vera mjög til fyrirmyndar og sérstaka ánægju með þjónustu Slökkviliðs Borgarbyggðar í þau örfáu skipti sem þurft hafi að kalla það til. „Ég vek athygli á að málið snýst ekki um brunavarnir, heldur um það hver skaffar og greiðir fyrir húsnæði fyrir búnað og slökkvibíl sem er hér og í næsta nágrenni. Frá því að ég tók við starfi rektors hefur ekki staðið á skólanum að útvega húsnæði undir slökkvidælu og annan nauðsynlegan búnað sem þarf að vera á staðnum eða í næsta nágrenni og því kemur þessi umkvörtun mér verulega á óvart. En ég mun óska eftir fundi með Borgarbyggð til að ræða þessi mál í kjölfar bréfsins.“
Mest lesið Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður „Ég elska Obbu“ Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira