Tré rifnuðu upp með rótum í Maryland 30. október 2012 13:49 Kolbrún tók þessa ljósmynd af tré sem fallið hafði í óveðrinu. MYND/KOLBRÚN KRISTJÁNSDÓTTIR
Stormurinn Sandy hefur valdið usla víða á austurströnd Bandaríkjanna. En áhrif hans eru þó ekki aðeins að finna á helstu hamfarasvæðum líkt og New Jersey og New York. Veðurofsinn hefur einnig haft mikil áhrif á höfuðborgina sjálfa, Washington, og stór svæði í Kanada. „Já, það var hvasst fram eftir kvöldi en þetta virðist hafa gengið yfir núna," segir Kolbrún Kristjánsdóttir sem búsett er í Bethesda, rétt norðan við Washington. Kolbrún hélt sig innandyra í gærkvöld og nótt ásamt fjölskyldu og vinum er Sandy gekk á land. „Það fór rafmagn af nokkrum götum hérna í nágrenninu," segir Kolbrún. Hún segir göturnar hafa verið auðar. Þá hafi tré rifnað upp með rótum í ofsaveðrinu. „Við vitum til þess að eitt tré hafi fallið á hús. Þá var öllu lokað og allt gert til að halda fólki frá umferðinni. Það er mikið skóglendi hérna í Bethesda og þegar eitt tré fellur þá stoppar allt."Víðtækt rafmagnsleysi hefur fylgt í kjölfarið á Sandy.MYND/APKolbrún veit ekki til þess að einhver hafi slasast þegar tréð féll. „Við erum hérna með Íslendinga í heimsókn sem ætluðu að versla, við verðum bara að bíða og sjá." Eins og áður segir þá hefur óveðrið haft veruleg áhrif á daglegt líf á austurströnd Bandaríkjanna. En Sandy hefur einnig valdið usla í Kanada. Hátt í 150 þúsund manns eru án rafmagns í Ontario. Þá er einnig víða rafmagnslaust í Toronto, stærstu borg Kanada.
Mest lesið Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira