Komin með nóg af yfirgangi tryggingafélagsins BBI skrifar 30. október 2012 22:42 Mynd úr safni. Mynd/GVA
Íris Dögg Ásmundardóttir, lærður bílamálari og gæða- og þjónustustjóri á Bílar og Tjón, hefur fengið sig fullsadda af framkomu tryggingafélagsins Varðar. Hún segir tryggingafélagið hunsa almennar samskiptareglur tryggingafélaga og verkstæða og þykir auk þess talað niður til sín í samskiptum við Vörð. Tryggingafélagið Vörður þykir mismuna bifreiðaverkstæðum, greiða ákveðnum verkstæðum hærra verð en öðrum fyrir sambærilega þjónustu og beina viðskiptavinum til ákveðinna verkstæða frekar en annarra. Þá þykir félagið einnig skipta sér fullmikið af því hvernig verkstæðin eigi að vinna og hvað þau eiga að fá fyrir þjónustuna. Vegna þessa gengur nú undirskriftalisti gegn framkomu Varðar milli verkstæða. Nú þegar hafa ellefu verkstæði skrifað undir listann og yfir tuttugu einstaklingar þar að auki. „Þeir vilja bara deila og drottna," segir Jónas Þór Steinarsson, talsmaður félags réttinga- og málningaverkstæða, og tekur undir með Írisi að hegðun félagsins einkennist af yfirgangi. „Það er nú nýbúið að dæma þá fyrir svona hegðan í ákveðnu tilviki." En það er ekki bara drottnunargirni félagsins sem fer fyrir brjóstið á Írisi heldur einnig vanvirðandi framkoma starfsmanna Varðar. „Hann hefur sagt að ég eigi ekki að vera í Cabas vegna þess að ég er kvenmaður," segir Íris og á þar við starfsmann Varðar sem sér um samskipti við verkstæði. Cabas er fyrirtækið sem samskipti tryggingafélaga og verkstæða fara í gegnum. Íris segir einnig frá því að sami starfsmaður hafi lagt samstarfsaðila hennar í einelti sem hafi að lokum hröklast úr starfi. Jónas tekur undir og segir að verkstæði sem skipta við Vörð finnist á þeim brotið. „Eins og þessi stúlka. Hún er bara ekki sátt við svona framkomu. Þetta er kannski merki um það að einhverjir gamlir verkstæðiskallar eru svo vanir einhverju svona böggi. Ég veit ekki." Íris segir að önnur tryggingafélög séu ekki mikið skárri en Vörður. „Vörður er verstur. Hinir fylgja fast á hæla hans. Fólk veit ekki hvað verkstæðin þurfa að þola frá tryggingafélögunum," segir hún.
Mest lesið Ákærð fyrir að frelsissvipta dreng eftir dyraat Innlent Sagði Sean Combs ekki virða svarið „Nei“ Erlent Twitter-morðinginn tekinn af lífi Erlent „Fyrir vikið er flokkurinn á hverfandi hveli“ Innlent Ingvar útskrifaður úr meðferð Innlent Litla kaffistofan skellir í lás Innlent Fínasta grillveður í kortunum Innlent Varar við því að stórvirkjun í Skagafirði verði útilokuð Innlent Tveir handteknir í tengslum við líkamsárás Innlent Þingfundi slitið á miðnætti en umræðan heldur áfram í dag Innlent Fleiri fréttir Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Innbrot á veitingastað og grunur um íkveikju í bifreið Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Sjá meira