Hver undanþágulyfseðill tekur hálftíma 7. nóvember 2012 07:00 Geðlæknar eru margir hverjir uggandi yfir því að ekkert samheitalyf sé komið á lyfjamarkað í stað Trilafon, sem hefur reynst hundruðum geðklofasjúklinga vel. Fréttablaðið/Anton
Læknar þurfa að fylla út sérstök eyðublöð í þríriti til viðbótar við umsókn um lyfjaskírteini til að ávísa sjúklingum sínum lyf sem eru á undanþágulista Lyfjastofnunar. Hvorki er hægt að útvega seðilinn rafrænt né símleiðis og má áætla að hver seðill taki í kringum hálftíma að útbúa, samkvæmt Gylfa Óskarssyni, sérfræðingi í barnalækningum hjá Barnaspítala Hringsins. Gylfi skrifar leiðara í síðasta tölublað Læknablaðsins, þar sem hann skorar á heilbrigðisyfirvöld að hefja endurskoðun og einföldun á regluverki um lyfjaávísanir og skráningu lyfja í samvinnu við samtök lækna. Núverandi ástand sé ekki boðlegt. Greint var frá því í Fréttablaðinu í gær að gamalt og vinsælt geðklofalyf, Trilafon, er hætt í framleiðslu og verður tekið af markaði hér á landi í byrjun næsta árs. Engin samheitalyf koma á markað í staðinn, en læknar geta útvegað sjúklingum sínum undanþágulyfseðil fyrir öðru lyfi sem sagt er hafa svipaða virkni. „Sýnu alvarlegast er þó þegar bráðnauðsynleg lyf hverfa algerlega af markaði eða eru ófáanleg í landinu um lengri eða skemmri tíma. Nýleg alvarleg dæmi um slíkt vekja spurningar um ábyrgð yfirvalda og lyfjafyrirtækja og möguleika hinna fyrrnefndu til að beita lyfjafyrirtæki viðurlögum þegar skortur á mikið notuðu lyfi getur ógnað öryggi sjúklinga,“ segir Gylfi í grein sinni. - sv
Mest lesið Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira