Vilja að stjórn Eirar segi af sér 7. nóvember 2012 13:25 Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson er formaður stjórnar Eir.
Íbúahreyfingin í Mosfellsbæ krefst þess að stjórn Eirar axli ábyrgð á greiðsluþroti stofnunarinnar með því að víkja. Eir skuldar átta milljarða, þar af eiga heimilismenn tvo milljarða sem þeir hafa lagt inn sem búsetutryggingu. Þeir fjármunir kunna að glatast að mati hreyfingarinnar en einn úr hreyfingunni, Þórður Björn Sigurðsson, er varabæjarfulltrúi í Mosfellsbæ, sem er eitt af sveitarfélögunum sem kemur að rekstri hjúkrunarheimilisins. Svo segir í tilkynningu íbúahreyfingarinnar: „Í fjölmiðlum hefur komið fram að í stað þess að stöðva byggingaframkvæmdir í kjölfar hrunsins hafi stjórnendur Eirar tekið ákvörðun um að halda áfram með byggingu nýrra íbúða. Sú ákvörðun reyndist afdrifarík. Til að fjármagna framkvæmdirnar voru peningar íbúðarétthafa notaðir. Stjórnendur hafi þannig notað peninga frá heimilismönnum sem ódýr lán í stað þess að reyna að ávaxta féð. Treyst var á að þensla á fasteignamarkaði héldi áfram en þegar markaðurinn lamaðist syrti í álinn. Þá er formaður stjórnar Eirar sagður hafa vitað strax árið 2011 að stofnunin væri á leið í greiðsluþrot. Engu að síður hafi verið haldið áfram að gera samninga við nýja íbúa. Slíkt er merki um alvarlegan dómgreindarbrest. Rétt væri að vísa málinu til lögreglu. Ljóst er að trúverðugleiki Eirar hefur beðið hnekki. Traust milli heimilismanna, aðstandenda þeirra og stjórnar Eirar er brostið. Til að Eir megi öðlast nauðsynlegan trúverðugleika er afsögn sitjandi stjórnar óhjákvæmilegt fyrsta skref."
Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Fleiri fréttir Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Sjá meira