Vilja draga kvótafrumvörpin til baka 3. maí 2012 12:18
Kvótafrumvörp ríkisstjórnarinnar munu hafa neikvæð áhrif á sjávarbyggðirnar og rekstur sjávarútvegsfyrirtækja. Þetta kemur fram í greinargerð sérfræðingahóps á vegum atvinnuveganefndar Alþingis. Þingmenn Sjálfstæðisflokks vilja að ríkisstjórnin dragi frumvörpin til baka. Atvinnuveganefnd Alþingis fékk þá Daða Má Kristófersson, dósent við Háskóla Íslands og Stefán B. Gunnlaugsson, lektor við Háskólann á Akureyri til að skrifa greinargerð um efnahagslegar afleiðingar kvótafrumvarpa ríkisstjórnarinnar. Greinargerðinni var skilað til nefndarinnar í gær. Greinarhöfundar telja að frumvörpin muni hafa veruleg áhrif á efnahag sjávarútvegsfyrirtækja. Skuldsett fyrirtæki komi illa út úr þeim breytingum sem frumvörpin boða og þá gagnrýna skýrsluhöfundar sérstaklega álagningaraðferðir veiðigjalda og segja að miðað sé við úreltar tölur við útreikninga. Þá er einnig talið að frumvörpin muni hafa neikvæð áhrif á efnahag sjávarbyggða með beinum og óbeinum hætti. Rætt var um málið í umræðu um störf þingsins á Alþingi í morgun. Sjálfstæðismenn töldu sýnt að frumvarpið væri illa unnið og því ætti að draga það til baka. Kristján L. Möller, formaður Atvinnuveganefndar sagði að það væri hlutverk þingmanna að vinna með frumvarpið en ekki væri nauðsynlegt að draga það til baka.
Mest lesið Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Enn óljóst hvað verður um umsóknina Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Fleiri fréttir Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sjá meira