Bíð eftir að vakna upp af draumnum 3. maí 2012 13:00 Magnús Samúelsson. Mynd/Valli
Magnús Samúelsson vaxtarræktarmaður hefur unnið til fernra verðlauna á fjórum alþjóðlegum mótum á síðastliðnum fjórum vikum. „Þessi árangur er ótrúlega góður og ég er ekki enn farinn að átta mig á þessu. Fólk í kringum mig er búið að vera að reyna að berja það inn í hausinn á mér en ég er bara að bíða eftir að ég vakni af draumi," segir Magnús. Hann vann til gullverðlauna í sínum flokki á tveimur mótum í Noregi og einu í Austurríki. Silfurverðlaun bættust í safnið á móti í Danmörku og svo náði hann einnig heildarverðlaunum á mótinu í Austurríki og öðru mótinu í Noregi. „Það var ótrúlega flott að ná heildarverðlaununum á International Austrian Champhionship í Austurríki. Þetta var svo stórt mót, um fimmtíu manns og keppinautarnir voru í rosalegu formi. Ég stóð við hliðina á einum hroðalegum gaur sem ég hélt að myndi vinna. Þegar tilkynna átti um heildarverðlaunin var ég bara farinn að fá mér vatn og kominn í buxur af því ég hélt að þessi hroðalegi myndi taka þau en svo var mitt nafn kallað og ég fékk bara algjört sjokk." Magnús, sem er 35 ára, segist bara vera að byrja í íþróttinni. „Þetta er í fyrsta skipti sem ég fer að keppa á alþjóðlegum mótum og ég bjóst þess vegna engan veginn við þessum góða árangri. Keppendur á þessum mótum voru á aldrinum 35 til 45 ára þannig að ég á nóg eftir. Að ná þessum góða árangri hvetur mann áfram og vonandi fæ ég fleiri góða aðila til að standa við bakið á mér. Ég stefni á að koma enn sterkari á þetta mót á næsta ári en ætla að byrja á því núna að ná mér niður á jörðina". -lbh
Mest lesið Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Enn óljóst hvað verður um umsóknina Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Fleiri fréttir Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sjá meira