Forsetahjónin selja Neyðarkallinn BBI skrifar 1. nóvember 2012 17:47 Sjálfboðaliðar. Mynd/Villi
Forsetahjónin ýttu söluátaki Landsbjargar úr vör í Smáralindinni nú síðdegis og seldu fyrstu neyðarkallana. Hundruð sjálfboðaliða félagsins eru nú víðsvegar um landið byrjuð að selja Neyðarkall björgunnarsveitanna. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Dorrit Moussaieff, forsetafrú, stóðu í Smáralindinni í dag og seldu Neyðarkalla, en áætlað er að um tvö þúsund sjálfboðaliðar björgunarsveitanna taki þátt í sölunni sem fram fer í dag, á morgun og á laugardag. Þeir verða staðsettir við allar helstu verslanir landsins og aðra fjölfarna staði, en auk þess verður gengið í hús. Þetta er sjöunda árið sem Neyðarkall björgunarsveitanna er seldur og hafa viðtökur landsmanna ætíð verið afskaplega góðar. Það yljar björgunarsveitarfólki ætíð um hjartarætur að finna þennan stuðning og þakklátt honum.Óveður Björgunarsveitirnar hafa hreint ekki setið auðum höndum í dag, því auk þess að hefja söluátak hafa allmörg útköll verið víðsvegar um landið vegna óveðurs. Síðustu klukkustundir hafa björgunarsveitir frá Vík í Mýrdal og Þórshöfn verið kallaðar út vegna þakplatna sem eru að fjúka af húsþökum og auk þess var björgunarsveitin á Hólmavík kölluð út vegna bíls sem er fastur á Steingrímsfjarðarheiði. Slysavarnafélagið Landsbjörg vill koma því á framfæri að veðurspáin er mjög slæm víða um land næstu sólarhringa og ekkert ferðaveður er mjög víða. Afar brýnt er að þeir sem telja sig nauðsynlega þurfa að vera á ferð kanni veðurspár og færð á vegum.
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Erlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Innlent Fleiri fréttir Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Sjá meira