Verjandi Annþórs taldi saksóknara vanhæfan 21. nóvember 2012 10:42 Annþór Kristján Karlsson leiddur fyrir dómara.
Héraðsdómur Reykjaness hafnaði í morgun kröfu Guðmundar St. Ragnarssonar, verjanda Annþórs Kristjáns Karlssonar, um að Karl Ingi Vilbergsson saksóknari í máli gegn Annþóri, Berki Birgissyni og félögum yrði úrskurðaður vanhæfur. Með frávísunarkröfu sinni vísaði Guðmundur í fréttir af vefmiðlum frá 22. júní síðastliðinn þegar mál Barkar Birgissonar var fyrir dómstólum. Í málinu var Börkur Birgisson ákærður, og síðar dæmdur fyrir brot gegn valdstjórninni með því að hafa hrækt í áttina að dómara og kallað hana ónefnum. Þegar málið var til meðferðar kom maður inn í dóminn og rétti Berki úlpu með einhverskonar verkfæri. Börkur reyndi þá að losa sig frá lögreglumönnum og Guðmundur segir að Karl Ingi hafi þá lent í ryskingum við einn af ákærðu í málinu í dag. Dómari telur hins vegar að ekkert hafi komið fram sem orsaki vanhæfi Karls Inga. „Er virðulegur dómari að segja að hæfi ákæruvaldsins skipti ekki máli?" spurði Guðmundur þá. „Við erum ekki að flytja mál um hæfi eins né neins" sagði Ástríður Grímsdóttir dómari þá. Þriðji dagurinn í réttarhöldunum gegn Annþóri, Berki og félögum hófst í dag. Eins og fram hefur komið voru þeir ákærðir fyrir fjölmörg ofbeldisbrot. Þeir réðust á menn með kylfum og öðrum bareflum. Þriðji dagur aðalmeðferðarinnar fer fram í dag. Þetta er fyrsti dagurinn sem aðalsakborningarnir, þeir Annþór og Börkur eru ekki viðstaddir.
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð Sjá meira