

Sýnum bændum stuðning
Ÿ Hvert verður innlegg þeirra í sláturhús; hvað fá bændur útborgað á þessu hausti?
Ÿ Hver verða launin sem eru afrakstur síðast liðins árs og ára?
Ÿ Hvað er framundan?
Gríðarlegt tjón en enginn veit enn hversu mikið
Sláturtíð lýkur ekki fyrr en seinni hluta október og þá geta menn einhverja grein gert sér fyrir tjóninu sem þeir hafa orðið fyrir, en langt í frá að allt liggi ljóst fyrir. En það er svo margt annað sem alger óvissa ríkir um. Allt vinnuskipulag hefur riðlast vegna þess gjörningaveðurs sem gekk yfir landið 10.-11. september. Haustverkum er ýtt til hliðar vegna brýnni verkefna; leitar að búfénaði í kapphlaupi við tímann - og þeim verður sinnt síðar, þegar færi gefst. Skemmdir urðu á trjágróðri, korni, grænfóðri, girðingum, jafnvel byggingum og víða tókst ekki að slá hána. Að ýmsu öðru þarf að hyggja fyrir veturinn en það hefur allt orðið að víkja um sinn. Þá er ýmislegt annað sem bætist þar ofan á, s.s. að vegna rafmagnsleysis varð matur e.t.v. ónýtur, hella þurfti niður mjólk og svo það að bændur urðu fyrir óvæntum útgjöldum í stórum stíl vegna leitarstarfa sem staðið hafa yfir vikum saman. Aukinn mannskapur við leitarstörf þarfnast matar, húsaskjóls og fatnaðar, - en hlífðarfatnaður dugði jafnvel ekki daginn út. Á vélknúin ökutæki af ýmsum gerðum þurfti eldsneyti og reikna má með bilunum og sliti á tækjum við leitarstörf í erfiðum aðstæðum. Allt þetta eru óvænt útgjöld við búsýsluna.
Erfiðar aðstæður, einangrun og alger þögn
Við venjulegar kringumstæður þegar smalað er, hvernig svo sem viðrar, þá rennur féð undan þegar styggð kemur að því, smalarnir dreifa sér á leitarsvæðin og smám saman stækkar safnið sem rennur undan þeim til byggða. Nú bar svo við að þetta gerðist ekki á hinn hefðbundna hátt. Færra fé fannst sem rann undan smalanum, hreyfingin á leitarsvæðinu var sama og engin, það gerðist ekkert! Snjór yfir öllu gerði allar aðstæður erfiðari, þungt að ganga og klofa snjóinn sem útheimtir mikið þrek. Því betur fannst fé á lífi, meiri hluti þess hefur lifað af þessar hremmingar. En margt fé hefur drepist, á kafi í fönn eða það hefur hrakið í ár og læki. Þar er um að ræða „framleiðslutæki" bænda. Það útheimtir andlegt og líkamlegt þrek að grafa upp stirðnaða skrokka og drösla þeim upp á yfirborðið. Víða á leitarsvæðunum var leiðindaveður, krapahríð, slydda, rigning og kalt. Þegar heim kom var illmögulegt að þurrka fatnað hjá þeim sem að auki bjuggu við rafmagnsleysi. Matseld við þær kringumstæður útheimti mikið skipulag og útsjónarsemi. Eftir að hafa hvílst en kannski svefnlausa nótt var farið á ný að leita, klæddur í þurr nærföt og innri fatnað en utanyfirfatnaður ennþá jafnblautur og fyrri daginn. Í rafmagnslausum húsakynnum var hljótt, enginn niður frá tækjum og vélum, útvarp ekki í gangi og víða var ekki símasamband, hvað þá tölvusamband. Skortur var á upplýsingum og aðgengi að þeim var ekkert fyrst um sinn. Rafmagnsleysi veldur því að fólk kemst ekki á internetið, heimasímar sem eru tengdir rafmagni verða gagnslausir, farsímar verða ekki endurhlaðnir nema úti í bíl og ekki algilt að allir hafi tæki til þess. Textavarp nýtist ekki og þegar heilt byggðarlag verður rafmagnslaust, auk þess sem nánast var ófært á milli bæja, þá voru menn einangraðir. Þögnin var alger og hún undirstrikaði e.t.v. þær aðstæður sem ríkja þar sem dauðinn hefur barið dyra. Þá reynir á styrk hvers og eins, - EN einnig á stuðning meðbræðra.
Bændum eðlislægt að taka hlutunum með jafnaðargeði
Það gjörningaveður sem skall á svo óvænt og með afleiðingum sem ekki sér fyrir endann á, kallar fram margvísleg viðbrögð og tilfinningar. Áfallið leggst af mismunandi þunga á fólk og mannfólkið er misjafnlega í stakk búið að taka áföllum. Þó má segja að bændum sé eðlislægt að taka því sem að höndum ber með jafnaðargeði. Þeir þekkja litróf lífsins harla vel, allt frá því að líf kviknar og þar til því lýkur og eru ekki óvanir að aflífa skepnur þegar þess er þörf. Þeir hafa ekki lagt í vana að barma sér þótt illa gangi og eru ekki að því heldur á þessum tíma. Enda er þeim efst í huga nú að bjarga því sem bjargað verður og eru flestir eða allir örþreyttir við björgunar- og leitarstörf. Það ástand sem nú hefur skapast reynir á hinn mannlega mátt, meira en góðu hófi gegnir. Í húfi er lifandi fénaður sem bændum er kær og að auki leggjast á þá áhyggjur af fjárhagslegu tjóni og í mörgum tilfellum stórtjóni. Ekki má gleyma að huga að börnunum sem mörg eiga sínar uppáhaldsskepnur og vegna álagsins hafa foreldrar ærin verkefni. Þörf er á varkárni í umræðunni um ástandið því börn skilja oft hlutina öðruvísi en hinir fullorðnu, eða misskilja og það getur bakað þeim óþarfa hræðslu og óöryggi.
Fullar bætur fást aldrei
Ráðamenn hafa lýst yfir að þeirra vilji standi til að bæta það tjón sem menn hafa orðið fyrir. En þótt Bjargráðasjóður eigi að taka við þar sem hefðbundnum tryggingum sleppir þá þarf enginn að búast við að hann bæti „allt" það tjón sem aðrir bæta ekki. Sem dæmi má nefna að girðingar sem eyðilögðust munu ekki fást fullbættar og það gefur augaleið að girðingar sem voru misupplitsdjarfar áður en þessar náttúruhamfarir gengu yfir, fást ekki bættar eins og um sé að ræða girðingar í góðu viðhaldi eða nýlega reistar. Samt sem áður er endurreisn girðinga gríðarlega fjárfrek. Það er í svo mörg horn að líta og mönnum gefst ekki tími til að huga að öllum þáttum fyrr en fyrsta lota er um garð gengin. Þess vegna er allt í lagi að almenningur hugleiði af alvöru í hvaða stöðu bændur og búalið eru, – og í raun er flestum hollt að hugleiða það.
Á íbúafundunum sem haldnir voru, skynjaði ég hve örþreyttir menn voru – en samt sem áður þótti fólki gott að hittast og spjalla, bera saman bækur sínar, en ekki síður að eiga samræður við þá sem komu utan að. Þar bar e.t.v. hæst kynning á áfallahjálpinni sem fólkinu stendur til boða.
Íslenska sauðkindin hefur sýnt alveg ótrúlega seiglu, líklega meiri seiglu en menn bjuggust við. Leitarfólk hefur unnið þrekvirki og ekki má gleyma að nefna þátt björgunarsveitanna, en hann er ómetanlegur. Í þessum aðstæðum hefur komið berlega í ljós hve samtakamáttur fólks og samkennd er mikils virði. Einmitt í slíku andrúmslofti ætti að nýta alla jákvæða krafta til endurreisnar - og af myndarskap. Á íbúafundinum í Skjólbrekku kom fram að raflínan í sveitinni yrði lögð í jörð og því var spurt hvort ekki væri lag nú, að leggja ljósleiðara samtímis þannig að menn í sveitinni sætu við sama borð og meirihluti landsmanna hvað nettengingu varðar. Ástæða er til að skora á alla hlutaðeigandi, að vinna því máli brautargengi.
Gleymum ekki því að bændur þurfa á stuðningi okkar að halda nú næstu vikur og mánuði. Verkefnin sem bíða þeirra nú eru óþrjótandi og óvissan mikil um marga þætti í nánustu framtíð. Eftir því sem tíminn líður frá óveðursdögunum og daglegu verkefnin taka við hjá almenningi, er enn mikilvægara að við munum eftir þeim. Gerum það sem í okkar valdi stendur og verum þeim innan handar og hjálpum eftir því sem okkur er unnt.
Skoðun

Hvers virði er lambakjöt?
Hafliði Halldórsson skrifar

Lífið er eins og konfektkassi, þú veist aldrei hvernig mola þú færð
Elín Íris Fanndal skrifar

Þjóðareign, trú og skattar
Svanur Guðmundsson skrifar

Hamas og átökin við Ísrael – hvað er ekki sagt upphátt?
Einar G Harðarson skrifar

Gjaldfrjálsar máltíðir fyrir leikskólabörn
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Næstu sólarhringar á Gaza skipta sköpum
Hlynur Már Vilhjálmsson skrifar

Hvernig gengur nýjum kennurum í grunnskólakennslu?
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson,Aðalheiður Anna Erlingsdóttir,Andri Rafn Ottesen,Maríanna Jónsdóttir Maríudóttir,Valgerður S. Bjarnadóttir skrifar

Huglæg réttlætiskennd og skattar á verðmætasköpun
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Loksins fær þyrlan heimili fyrir norðan
Njáll Trausti Friðbertsson skrifar

Opið bréf til stjórnvalda
Elín Ýr Arnar Hafdísardóttir skrifar

Við skuldum þeim að hlusta
Ólafur Adolfsson skrifar

„Litla stúlkan og ruddarnir“ - Hugleiðing um stöðu Íslands á alþj.vettv.
Flosi Þorgeirsson skrifar

Mikilvæg gagnrýni eða tilraun til valdayfirtöku í Sósíalistaflokknum?
Ása Lind Finnbogadóttir skrifar

Matvælaverð hefur nær þrefaldast frá stofnun Viðskiptaráðs!
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir skrifar

Alvarleg staða í umhverfi fréttamiðla
Rósa Guðbjartsdóttir skrifar

Stéttarkerfi
Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar

Stöðvum Hamas. Einungis þannig getum við stöðvað hryllinginn á Gaza
BIrgir Finnsson skrifar

Dagur líffræðilegrar fjölbreytni 2025
Rannveig Magnúsdóttir,Ole Sandberg,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Rebecca Thompson,Skúli Skúlason,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir skrifar

Æfingin skapar meistarann!
Sigurjón Már Fox Gunnarsson skrifar

140 sinnum líklegra að verða fyrir eldingu
Sigurður G. Guðjónsson skrifar

Konum í afplánun fjölgar: Með flókin áföll á bakinu
Tinna Eyberg Örlygsdóttir,Sigríður Ella Jónsdóttir skrifar

Traust í húfi
Eyjólfur Ármannsson skrifar

Verðmætasköpun án virðingar
Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar

Daði Már týnir sjálfum sér
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Samhljómur við náttúruna og sjálfbæra þróun
Anna María Ágústsdóttir skrifar

Aðgerðir gegn mansali í forgangi
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar

Enginn á verðinum – um ábyrgð, framtíðarsýn og mikilvægi forvirkrar stjórnsýslu
Guðjón Heiðar Pálsson skrifar

Framtíðin fær húsnæði
Ingunn Gunnarsdóttir skrifar

Börnin sem deyja á Gaza
Elín Pjetursdóttir skrifar

Brýr, sýkingar og börn
Jón Pétur Zimsen skrifar