Ólétt á ný eftir að hafa misst tvíbura Erla Hlynsdóttir skrifar 11. október 2012 20:48
Kristín Guðmundsdóttir handboltakona er ólétt á ný eftir að hafa misst tvíbura á síðasta ári. Hún sér eftir því að hafa ekki tekið ljósmyndir af tvíburunum. Kristín er ein þeirra sem standa að minningarathöfn sem haldin verður í Hallgrímskirkju á mánudagskvöld til að minnast látinna barna.Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá viðtal við hana þegar fréttakona fer með henni í læknisskoðun. Kristín greindi frá því opinberlega að hún hefði fætt andvana tvíbura eftir að vera gengin með þá nítján vikur. Hún er nú ólétt á ný. „Ég hef nú ekki tilkynnt það en fólk er aðeins farið aftur að sjá mig á handboltaleikjum og þá fattar fólk þetta. annars var ég mest heima svona fyrstu mánuðina," segir Kristín.Og hvað ertu komin langt? „Ég er komin tæpar 29 vikur. Ótrúlega gaman," segir Kristín. Kristín er í auknu eftirliti eins og venjan er hjá konum sem hafa misst börn á meðgöngu. Frá því hún varð ólétt hefur hún komið nánast vikulega í læknisskoðun.Reiknaðir þú með því að verða ólétt aftur? „Já, ég held svona að þegar maður talar við konur í svipaðri aðstöðu þá sé mjög algengt að það sé nánast það eina sem þú getur hugsað um. Það er bara að verða ófrísk sem fyrst aftur. Það tók okkur 9-10 mánuði, sem voru náttúrulega bara erfiðir 9-10 mánuðir en það tókst á endanum. Meðgangan er búin að vera náttúrulega andlega mjög erfið og líkamlega reyndar líka en annars er þetta bara allt að smella," segir Kristín. Á fjórtándu viku greindist hún með leghálsbilun og því er ekki ólíklegt að hún eignist barnið fyrir tímann. En skoðun sýndi að barnið dafnar vel og hefur stækkað mikið frá síðustu skoðun. Og hjartsláttur barnsins var hraður eins og vera ber Kristínu leið mjög vel eftir skoðunina. „Alltaf vel þegar skoðunin er búin, að fá að sjá hjartslátt og jafnvel sjá aðeins krílið. Það léttir alltaf á þessu andlega," segir hún. Væntanlegur er fræðslubæklingur um barnsmissi. „Við mælum með því að þú takir mynd af börnunum þínum. Ég tók ekki mynd af mínum og ég stórsé eftir því. Þetta er eitthvað sem þú ert ekki að hugsa um þarna. Hvernig í ósköpunum áttu að vita að þetta er eitthvað sem þig langar að gera? Og að nefna jafnvel börnin, sumir gera það. Jarða þau jafnvel," segir hún. Alþjóðlegur minningardagur vegna missis á meðgöngu og barnsmissis verður haldinn í fyrsta skipti hér á Íslandi á mánudag. „Þetta verður í Hallgrímskirkju, mánudaginn 15. október klukkan hálf átta. Og við bara vonumst til að sjá sem flesta," segir hún.
Mest lesið Vaktin: Leitin að morðingja Charlie Kirk í fullum gangi Erlent Sakborningur í 28 málum sendur úr landi Innlent Hver var Charlie Kirk? Erlent Bandamaður Trumps skotinn til bana á fjölmennum viðburði Erlent Tilkynningum um „spoofing“ fjölgað verulega síðustu ár Innlent „Súrrealísk og skelfileg upplifun“ Innlent Trump nýti sér morðið til frekari valdtöku Innlent Trump segir öfga-vinstrið bera ábyrgð á morðinu Erlent Quang Le stefnir Landsbankanum Innlent 3,7 stiga skjálfti í Árnesi Innlent Fleiri fréttir E.Coli staðfest í neysluvatninu á Stöðvarfirði „Froðuhagnaður“ Félagsbústaða haldi borginni á floti Launahækkanir þungur baggi á borginni Trump nýti sér morðið til frekari valdtöku Fjörugar umræður um fjárlög: Hóflegur útgjaldavöxtur, vonbrigði eða della? Fjárlögin litlaus líkt og hann sjálfur Tekist á um fjárlagafrumvarpið og morðið á Charlie Kirk Tilkynningum um „spoofing“ fjölgað verulega síðustu ár „Súrrealísk og skelfileg upplifun“ Bein útsending: Daði Már mælir fyrir fjárlögum næsta árs Ofbeldi foreldra gegn börnum jókst um nær helming 3,7 stiga skjálfti í Árnesi Ákall um íslenskukennslu: „Oft var þörf en nú er nauðsyn“ Vilja styttu af Gunnari í Gunnarsbrekku Líkamsárás og skartgripaþjófnaður Sakborningur í 28 málum sendur úr landi Kosti þrjár milljónir fyrir alþjóðlega nemendur að læra á Íslandi Quang Le stefnir Landsbankanum Fékk milljón vegna afmælis kattarins Ríkisstjórnin feli sig á bak við mistök þeirrar fyrri Um 100 þúsund lömbum slátrað hjá SS á Selfossi „Ísland á betra skilið“ Biður þingmenn að gæta orða sinna Stefnuræða forsætisráðherra á dagskrá í kvöld Óásættanlegt hversu margir falla fyrir eigin hendi Áhyggjuefni að menn missi stjórn á atburðarásinni Fundu fyrir jarðskjálfta í Hveragerði Kærður fyrir fjársvik fyrir að neita að borga Einbeittur brotavilji og óásættanlegur fjöldi sjálfsvíga Ellefu vilja vera ritstjóri Kveiks Sjá meira