Handbolti

Strákarnir borða íslenskt lambakjöt í kvöld

Henry Birgir Gunnarsson í Jönköping skrifar

Strákarnir okkar ætla aðeins að brjóta sig út úr hinu hefðbundna umhverfi í kvöld. Fara á annað hótel þar sem þeir munu fá íslenskt lambalæri.

Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri HSÍ, og Knútur Hauksson, formaður HSÍ, létu senda nokkur læri til Svíþjóðar sem hópurinn mun gæða sér á í kvöld.

"Það kemur blik í augunum á manni þegar íslenska lambakjötið er annars vegar. Þau verða elduð eins og mamma gerir það. Það verður ljúft að fá lambalæri og vonandi hjálpar það okkur í leiknum á morgun," sagði Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×