Umfjöllun: FH - Akureyri 34-21 Stefán Árni Pálsson skrifar 13. nóvember 2011 17:10 Ólafur Gústafsson Mynd/Anton
FH fór létt með að slá Akureyri út úr Eimskipsbikarnum, en liðið sigraði norðanmenn 34-21 í 16-liða úrslitum, leikurinn fór fram í Kaplakrika í dag. Sigurinn var aldrei í hættu og Fimleikafélagið mun sterkari aðilinn í leiknum. Ólafur Gústafsson fór mikinn í liði FH og skoraði 9 mörk. Leikurinn byrjaði mjög svo rólega svo vægt sé til orða tekið. Hvorugu liðinu gekk að koma boltanum í netið og það tók gestina frá Akureyri fimm mínútur til gera sitt fyrsta mark í leiknum. FH var sterkari aðilinn til að byrja með og leiddi með fjórum mörkum 9-5 um miðbik hálfleiksins. Heimamenn gáfu ekkert eftir næstu mínútur og juku forskot sitt jafnt og þétt, en þeir náðu mest níu marka forystu í fyrri hálfleiknum. Staðan var 16-9 þegar flautað var til leikhlés. Það gekk akkúrat ekkert upp í sóknarleik Akureyringa og Daníel Andrésson lokaði gjörsamlega markinu fyrir FH-inga. Akureyringar hófu síðari hálfleikinn með miklum látum og voru ekki lengi að koma sér aftur inn í leikinn. Fljótlega var staðan orðin 18-15 fyrir FH, en galopinn leikur. Heimamenn hleyptu aftur á móti Akureyringum ekki nær og voru fljótlega aftur komnir með níu marka forkskot í stöðunni 26-17. Leiknum lauk síðan með öruggum sigri FH-inga 34-21 og þeir eru því komnir í 8-liða úrslit Eimskipsbikarsins. FH náði mest 13 marka forystu í leiknum og yfirburðir þeirra í leiknum algjörir. FH - Akureyri 34-21 (16-9)Mörk FH: Ólafur Gústafsson 9, Örn Ingi Bjarkason 4, Halldór Guðjónsson 4, Þorkell Magnússon 8, Hjalti Pálmason 2, Andri Berg Haraldsson 2, Bjarki Jónsson1.Varin skot: Daníel Freyr Andrésson 16Mörk Akureyrar: Heimir Örn Árnason 7,Guðmundur Hólmar Helgason 5, Bjarni Fritzson 5, Geir Guðmundsson 2, Heiðar Þór Aðalsteinsson 2, Oddur Grétarsson 1.Varin skot: Sveinbjörn Pétursson 15, Stefán Guðnason 1
Olís-deild karla Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti Finnur til með Arnari Handbolti Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Enski boltinn Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira