Handbolti

Björgvin Páll: Mættu með einn slakasta póker sem ég hef séð

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar

Björgvin Páll Gústavsson sendi norska landsliðinu skýr skilaboð eftir sigurinn í kvöld. Ísland vann sjö marka sigur á Noregi, 29-22.

Björgvin Páll átti hreint stórkostlegan leik og varði 21 skot, helming þeirra sem hann fékk á sig.

„Já, þetta var frábær leikur hjá okkur öllum," sagði hann hógvær.

„En Norðmenn mættu í þennan leik með einn slakasta póker sem ég hef séð. Þeir vældu í dómurunum strax frá fyrstu mínútu og létu sig svo liggja í gólfinu."

„Við sýndum bara að þú gerir ekki svona við Íslendinga. Við börðum bara á þeim og þeir áttu aldrei séns í seinni hálfleik."

Ísland mætir Þýskalandi á laugardaginn í fyrsta leik í milliriðli. „Okkar markmið var að fara í milliriðilinn með fjögur stig. Það er mikilvægt. En ég nenni ekki að hugsa lengra núna. Ég ætla að fagna þessum sigri í tvo tíma og reyna svo að sofna í kvöld. Svo spáum við í Þýskalandi."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×