Handbolti

Sverre: Við Diddi vorum á innsoginu

Henry Birgir Gunnarsson í Linköping skrifar

"Það virðast allir vera mjög glaðir yfir þessu marki og það gleður mig að geta glatt þjóðina með svona stórglæsilegu marki," sagði brosmildur Sverre Andreas Jakobsson eftir leikinn gegn Japan í gær.

Sverre komst þá loks á blað í keppninni eins og reyndar fleiri leikmenn íslenska liðsins.

Sverre og félagar í vörninni áttu magnaðan leik í vörninni gegn Japan og réðu afar vel við fljóta og kvika Japana.

"Þeir voru samt fljótari á vellinum en á myndböndunum. Maður fann það. Við vorum vel undirbúnir og vorum með svörin. Við vorum aldrei hræddir við Japan. Þeir voru samt hraðir og við Diddi vorum stundum á innsoginu.

"Við erum þreyttir eftir þennan leik og þó svo sigurinn hafi verið sannfærandi þá þurfti að hafa fyrir honum."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×