Handbolti

Það er enn rokk og ról í þessu

Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar

Íslendingar töpuðu sínum fyrsta leik í kvöld á HM í handbolta gegn Þjóðverjum í fyrsta leiknum í milliriðli 1 sem fram fer í Jönköping. Í HM þættinum Þorsteinn J & gestir á Stöð 2 sport var farið yfir gang mála í leiknum og í myndbandinu má sjá brot af því besta - skreytt með góðri tónlist. Það er enn rokk og ról í þessu þrátt fyrir smá mótvind. Næsti leikur og allt það - áfram Ísland.

Það var hart barist og Þjóðverjar höfðu betur 27-24. Íslendingar eru með 4 stig í milliriðlinum og næstu mótherjar eru Spánverjar og sá leikur fer fram á mánudag.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×