Dóttir Þóris: Þetta verður sérstakur leikur fyrir fjölskylduna Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 6. desember 2011 16:00 Þórir Hergeirsson er þjálfari norska landsliðsins. Mynd/Pjetur
María Þórisdóttir er eins og pabbi sinn í sérstakri stöðu fyrir leik Íslands og Noregs á HM í Brasilíu í kvöld. Faðir hennar er Selfyssingurinn Þórir Hergeirsson, þjálfari norska landsliðsins. Fjölskyldan mun samt halda mest með Noregi og pabbanum, en smá með Íslandi líka. „Þetta verður sérstakur leikur. Bæði fyrir pabba og okkur sem sitjum heima,“ sagði hún í viðtali við heimasíðu dagblaðsins VG. María er átján ára gömul og á norska móður. Hún hefur búið í Noregi alla sína tíð enda flutti Þórir til Noregs fyrir 25 árum síðan. María spilar bæði með U-19 ára landsliði Noregs í fótbolta og er einnig efnileg handboltakona. Spurð hvort hún líti á sig sem norska svarar hún einfaldlega: „Ég er hálfur Íslendingur.“ Fram kemur í greininni að Þórir hafi talað á íslensku við sín börn sem hafi fengið föðurnafn sitt samkvæmt íslenskri hefð. „Ég var mjög ánægð með að Ísland hafi unnið Svartfjallaland en ég held mest með Noregi. En það er smá hluti af mér sem heldur líka með Íslandi,“ er haft eftir Maríu. Hún segir að pabbi sinn sé Íslendingur í húð og hár. „Hann er bara íslenskur. Hann ólst upp á Íslandi og verður áfram Íslendingur.“
Mest lesið Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Fótbolti Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Formúla 1 Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Sport Ráða nýjan yfirþjálfara eftir líkamsárás forverans Sport Meiddist í Portúgal Enski boltinn Gylfi með til Eistlands Fótbolti Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Uppgjörið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Elvar með sex mörk í toppslagnum Lið Viggós á hvínandi siglingu í Þýskalandi Minden keypti Erling af ÍBV Guðjón Valur hafði betur gegn Arnóri Sjá meira