Ridley Scott og félagar sprengja í Rangárþingi ytra 12. júlí 2011 10:00 Ridley Scott ætlar að sprengja í þrjá daga við Dómadalsleið en leyfi fyrir slíku var veitt í hreppsnefnd Rangárþings ytra. Stjörnur kvikmyndarinnar munu gista á Hótel Rangá, en meðal þeirra sem hingað koma er Óskarsverðlaunaleikkonan Charlize Theron.
Breski leikstjórinn Ridley Scott hefur fengið leyfi til sprenginga frá 5. júlí til 1. ágúst við Dómadalsleið samkvæmt fundargerð hreppsnefndar Rangárþings ytra. Í fundargerðinni kemur jafnframt fram að aðeins verði sprengt þrjá daga innan þess tímaramma. Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst eru sprengingarnar ekki stórar heldur eru einungis hugsaðar sjónrænt fyrir tökuvélarnar. Guðfinna Þorvaldsdóttir, oddviti hreppsnefndarinnar í Rangárþingi ytra, staðfesti að sveitarfélagið hefði gefið kvikmyndagerðarfólkinu leyfi til að athafna sig við Dómadalsleið. „Þeir eru þarna í gosefnunum frá Heklu." Hún sagði sveitarfélagið ekki fá neitt fyrir sinn snúð annað en góða kynningu. Þá styrki nærvera þeirra þjónustuaðila á svæðinu. Hún bætir því við að íbúar í Rangárþingi kippi sér lítið upp við nærveru leikstjórans Scotts og annarra Hollywood-stjarna sem væntanlegar eru austur. „Nei, ætli þeir geri sér nokkuð grein fyrir umfanginu, menn eru líka að gera mynd og vilja örugglega ekkert vera að vekja of mikla athygli á sér." Flugbjörgunarsveitin á Hellu sér um gæslu fyrir Ridley Scott. Svanur Sævar Lárusson, formaður sveitarinnar, staðfesti það í samtali við Fréttablaðið. Hann vísaði að öðru leyti á starfsfólk framleiðslufyrirtækisins True North sem hefur veg og vanda af komu tökuliðsins til Íslands. True North er búið að stofna fyrirtækið KOP til að halda utan um framleiðsluna hér á landi en það er gert með vísan í lög um tímabundna endurgreiðslu vegna kvikmyndagerðar á Íslandi. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins gista Hollywood-stjörnurnar á Hótel Rangá á meðan tökum við Dómadalsleið stendur. Friðrik Pálsson, staðarhaldari þar, vildi ekkert tjá sig við Fréttablaðið heldur vísaði öllum spurningum yfir til True North. Á vefsíðu hótelsins kemur fram að gestum bjóðist viðamikill lúxus, eitthvað sem Óskarsverðlaunaleikkonan Charlize Theron hlýtur að gera kröfu en eins og kom fram í Fréttablaðinu í gær eru Noomi Rapace og Michael Fassbender einnig meðal leikara sem dvelja hér á landi. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Megas er látinn Lífið Fleiri fréttir Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island Sjá meira