Hrafnseyrarþing Vésteinn Ólason skrifar 23. júní 2011 11:00 Ekki er laust við að þeir sem fylgst hafa með rannsóknum á Íslandssögu undanfarna áratugi undrist stundum orð alþingismanna þegar þeir fara að vísa til sögunnar. Í ræðum þeirra gætir einatt viðhorfa sem rekja má til sagnfræðirita eða sagnfræðiumræðu nítjándu aldar og fyrri hluta þeirrar tuttugustu. Þegar þessi sögufróðleikur hljómar í þingsölum hefur hann þó oftast farið gegnum mörg stig endurvinnslu síðan hann kom fyrst fram. Nú hefur Alþingi stofnað prófessorsstöðu í minningu eins ágætasta sagnfræðings og textafræðings nítjándu aldar. Meginatriði í frétt um starfið er að prófessornum beri að stjórna málþingi á afskekktum stað á Vestfjörðum einu sinni á ári. Ekki er fullljóst af fréttum hvort embættið sé á sviði sagnfræði. Þó má ætla að það verði veitt sagnfræðingi eða a.m.k einhverjum sem stundað hafi árangursríkar og mikils metnar rannsóknir á sögu og menningu þjóðarinnar. Með þessari samþykkt hefur Alþingi tekið viturlega ákvörðun sem gæti orðið til góðs. Í reglugerð ætti að kveða á um að alþingismenn skuli taka þátt í málþinginu fyrir vestan og njóta þar fræðslu um nýjustu viðhorf og niðurstöður rannsókna á sögu Íslands og menningu. Samgöngur við staðinn ættu að tryggja að þar geti menn einbeitt sér að náminu. Hæfilegt væri svo að prófessorinn héldi þingmönnum við efnið með vikulegum fyrirlestrum í Alþingishúsinu á starfstíma Alþingis. Þar hófust einmitt háskólafyrirlestrar fyrir einni öld. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Byggjum fyrir eldra fólk, ekki ungt Ólafur Margeirsson Skoðun Hlustum í eitt skipti á foreldra Jón Pétur Zimsen Skoðun Stattu vörð um launin þín Davíð Aron Routley Skoðun Hugleiðingar um ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs Örn Sigurðsson Skoðun Okkar lágkúrulega illska Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir Skoðun Andaðu rólega elskan... Ester Hilmarsdóttir Skoðun Ég vildi óska þess að ég hefði hreinlega fengið krabbamein Íris Elfa Þorkelsdóttir Skoðun Öndum rólega – á meðan húsið brennur Magnús Magnússon Skoðun Eldri borgarar – áhrif aðildar að Evrópusambandinu (ESB) Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Skólaskætingur Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Stattu vörð um launin þín Davíð Aron Routley skrifar Skoðun Byggjum fyrir eldra fólk, ekki ungt Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Hlustum í eitt skipti á foreldra Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hugleiðingar um ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs Örn Sigurðsson skrifar Skoðun Heildstætt heilbrigðiskerfi – hagur okkar allra Alma D. Möller skrifar Skoðun Vanþekking eða vísvitandi blekkingar? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun „I believe the children are our future…“ Karen Rúnarsdóttir skrifar Skoðun Mikilvægi félagasamtaka og magnað maraþon Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Allt sem ég þarf að gera Dagbjartur Kristjánsson skrifar Skoðun Eldri borgarar – áhrif aðildar að Evrópusambandinu (ESB) Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Meiri gæði og mun minni álögur - Hveragerðisleiðin í leikskólamálum Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir,Sandra Sigurðardóttir,Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir,Halldór Benjamín Hreinsson,Njörður Sigurðsson skrifar Skoðun Reykjavíkurborg stígur fyrsta skrefið í snjallvæðingu umferðarljósa! Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Framtíðin í fyrsta sæti – mikilvægi forgangsröðunar á tillögum Kópavogsbæjar í grunnskólamálum Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Notkun ökklabanda Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Skólaskætingur Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir skrifar Skoðun Þéttingarstefnan hefur brugðist og Dóra breytir um umræðuefni Aðalsteinn Haukur Sverrisson skrifar Skoðun Ný sókn í menntamálum Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð, fálmandi mjálm eða aðgerðir? Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Vin í eyðimörkinni – almenningsbókasöfn borgarinnar Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Er Akureyri að missa háskólann sinn? Aðalbjörn Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu staðreyndir um alvarlegustu kvenréttindakrísu heims Stella Samúelsdóttir skrifar Skoðun Ég vildi óska þess að ég hefði hreinlega fengið krabbamein Íris Elfa Þorkelsdóttir skrifar Skoðun Mestu aularnir í Vetrarbrautinni Kári Helgason skrifar Skoðun Fjárfestum í fyrsta bekk, frekar en fangelsum Hjördís Eva Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftirlíking vitundar og hætturnar sem henni fylgja Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Andaðu rólega elskan... Ester Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Gagnvirkni líkama og vitundar til heilbrigðis Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Nýjar lausnir í kennslu – gamlar hindranir Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Kópavogsleiðinn Ragnar Þór Pétursson skrifar Skoðun Samstarf sem skilar raunverulegum loftslagsaðgerðum Nótt Thorberg skrifar Sjá meira
Ekki er laust við að þeir sem fylgst hafa með rannsóknum á Íslandssögu undanfarna áratugi undrist stundum orð alþingismanna þegar þeir fara að vísa til sögunnar. Í ræðum þeirra gætir einatt viðhorfa sem rekja má til sagnfræðirita eða sagnfræðiumræðu nítjándu aldar og fyrri hluta þeirrar tuttugustu. Þegar þessi sögufróðleikur hljómar í þingsölum hefur hann þó oftast farið gegnum mörg stig endurvinnslu síðan hann kom fyrst fram. Nú hefur Alþingi stofnað prófessorsstöðu í minningu eins ágætasta sagnfræðings og textafræðings nítjándu aldar. Meginatriði í frétt um starfið er að prófessornum beri að stjórna málþingi á afskekktum stað á Vestfjörðum einu sinni á ári. Ekki er fullljóst af fréttum hvort embættið sé á sviði sagnfræði. Þó má ætla að það verði veitt sagnfræðingi eða a.m.k einhverjum sem stundað hafi árangursríkar og mikils metnar rannsóknir á sögu og menningu þjóðarinnar. Með þessari samþykkt hefur Alþingi tekið viturlega ákvörðun sem gæti orðið til góðs. Í reglugerð ætti að kveða á um að alþingismenn skuli taka þátt í málþinginu fyrir vestan og njóta þar fræðslu um nýjustu viðhorf og niðurstöður rannsókna á sögu Íslands og menningu. Samgöngur við staðinn ættu að tryggja að þar geti menn einbeitt sér að náminu. Hæfilegt væri svo að prófessorinn héldi þingmönnum við efnið með vikulegum fyrirlestrum í Alþingishúsinu á starfstíma Alþingis. Þar hófust einmitt háskólafyrirlestrar fyrir einni öld.
Skoðun Meiri gæði og mun minni álögur - Hveragerðisleiðin í leikskólamálum Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir,Sandra Sigurðardóttir,Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir,Halldór Benjamín Hreinsson,Njörður Sigurðsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg stígur fyrsta skrefið í snjallvæðingu umferðarljósa! Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar
Skoðun Framtíðin í fyrsta sæti – mikilvægi forgangsröðunar á tillögum Kópavogsbæjar í grunnskólamálum Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar
Skoðun Þéttingarstefnan hefur brugðist og Dóra breytir um umræðuefni Aðalsteinn Haukur Sverrisson skrifar