Handbolti

Maðurinn sem vakir á næturnar

Henry Birgir Gunnarsson í Linköping skrifar

Einn af mönnunum á bak við tjöldin hjá íslenska landsliðinu í Svíþjóð er hinn harðduglegi Gunnar Magnússon.

Gunnar fær það hlutverk að vaka á næturnar þegar aðrir sofa. Þá er hann að klippa til myndbönd af andstæðingum Íslands og þarf að hafa það klárt á morgnana svo Guðmundur geti haldið myndbandsfund.

Gunnar hefur verið hluti af þjálfarateymi landsliðsins ansi lengi og er orðinn þrautreyndur á þessu sviði og með betra skipulagi er hann að ná aðeins meiri svefn en áður.

Vísir kíkti í heimsókn inn á herbergi til Gunnars og spurði hann út í starfið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×